47 hótel á Íslandi lokuð í maí

Í lok mars tóku mörg hótel á Íslandi þá ákvörðun að loka tíma­bundið og í apríl voru 75 hótel lokuð. Eitthvað vænk­að­ist hagur í maí en þá voru 47 hótel lokuð.

Í lok mars tóku mörg hótel á Íslandi þá ákvörðun að loka tíma­bundið og voru 47 hótel lokuð í maí en 75 hótel voru lokuð í apríl. Framboð gisti­rýmis minnk­aði um 26,5 pró­sent frá maí 2019, mælt í fjölda hót­el­her­bergja, sem skýrist af lok­unum hót­ela. Her­bergj­a­nýt­ing á hót­elum í maí 2020 var 8,9 pró­sent og dróst saman um 46,8 pró­sentu­stig frá fyrra ári.

Þetta kemur fram á vef Hag­stof­unnar í dag.

Þá segir að heild­ar­fjöldi greiddra gistin­átta í maí síð­ast­liðnum hafi dreg­ist saman um 89 pró­sent sam­an­borið við maí 2019. Þar af hafi gistin­óttum fækkað á hót­elum um 88 pró­sent og um 86 pró­sent á gisti­heim­ilum. Þá hafi 84 pró­sent fækkun verið á öðrum teg­undum gisti­staða á borð við far­fugla­heim­ili og orlofs­hús.

Ekki var hægt að áætla erlendar gistinætur á stöðum sem miðla gist­ingu í gegnum Airbnb og svip­aðar síður, að því er fram kemur hjá Hag­stof­unni.

Greiddar gistinætur ferða­manna á öllum gisti­stöðum voru um 76.000 í maí en þær voru um 660.000 í sama mán­uði árið áður. Um 87 pró­sent gistin­átta voru skráðar á Íslend­inga, eða um 66.000, en um 13 pró­sent á erlenda gesti eða um 10.000 nætur. Gistinætur á hót­elum og gisti­heim­ilum voru um 51.300, þar af 37.100 á hót­elum. Gistinætur á öðrum teg­undum gisti­staða voru um 24.000.

[adspot]

Gistinætur á hót­elum í maí síð­ast­liðnum voru 37.100 sem er fækkun um 88 pró­sent frá sama mán­uði árið áður, sam­kvæmt Hag­stof­unni. Um 8 pró­sent gistin­átta á hót­elum voru skráð á erlenda ferða­menn, eða 3.000, en gistinætur Íslend­inga voru 34.100 eða 92 pró­sent.

Á 12 mán­aða tíma­bili, frá júní 2019 til maí 2020, var heild­ar­fjöldi gistin­átta á hót­elum um 3.788.000 sem er 15 pró­sent fækkun miðað við sama tíma­bil árið áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár