Katrín hefur ekki hug á að fjölga ráðherrum

Bjarni Bene­dikts­son segir að það sé eðli­legt að Sjálf­stæð­is­flokkur fái fleiri ráðu­neyti ef Katrín Jak­obs­dóttir verður for­sæt­is­ráð­herra. Katrín seg­ist ekki hafa hug á því að fjölga ráð­herra­emb­ættum. Stjórn­ar­sátt­máli gæti verið kynntur eftir helgi.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna. Mynd: RÚV/Skjáskot

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, seg­ist ekki hafa hug á því að fjölga ráð­herrum í rík­is­stjórn­inni umfram það sem nú er. Þetta segir hún í sam­tali við RÚV fyrir fund leið­toga þeirra flokka sem nú reyna að mynda rík­is­stjórn í ráð­herra­bú­staðnum í dag.

Katrín segir að sam­staða sé milli hennar og leið­toga Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks um að breyta þurfi vinnu­brögðum á Alþingi og að þar þurfi allir að leggja sitt að mörkum, bæði meiri­hluti og minni­hluti. Hún seg­ist leggja mikla áherslu á að kynja­hlut­föll í vænt­an­legri rík­is­stjórn verði sem jöfn­ust en ráð­herrar eru sem stendur ell­efu tals­ins.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði við sama til­efni að mál­efna­samn­ingur flokk­anna þriggja gæti klár­ast um helg­ina. Hann segir bjart­sýni ríkja í sam­tölum leið­toga flokk­anna þriggja og að þau séu í þeim við­ræðum sem standi yfir til þess að ná málum saman. Ekki sé þó hægt að úti­loka að eitt­hvað komi upp á en Bjarna finnst við­ræð­urnar ganga ágæt­lega.

Aðspurður um hvort enn sé gengið út frá því að Katrín verði for­sæt­is­ráð­herra sagði Bjarni að það hafi verið á meðal þess sem rætt hafi verið um. Á móti þyki honum eðli­legt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái fleiri ráð­herra­stóla. Bjarni sagði að ef saman næst ætti stjórn­ar­sátt­máli að verða kynntur eftir helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár