Straumhvörf í samskiptum - Verður Keflavíkurherstöðin opnuð aftur?

Aðstoð­ar­varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna Robert O. Work átti nýverið fund með íslenskum ráða­mönnum um sam­starf ríkj­anna í öryggis- og varn­ar­málum, auk þess sem hann skoð­aði mann­virki og búnað á Kefla­vík­ur­flug­velli. Í kjöl­farið voru sagðar fréttir af því að Banda­ríkja­menn vildu mögu­lega auka við­veru sína hér, en þeir lögðu her­stöð­ina á Mið­nes­heiði niður með skömmum fyr­ir­vara árið 2006 eftir hátt í 60 ára starf­semi.

Fram hefur komið að frum­kvæðið að fund­inum hafi ekki komið frá íslenskum stjórn­völdum og engar form­legar við­ræður hafi átt sér stað um þessar vanga­veltur. Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra árétt­aði að þetta væri að frum­kvæði Banda­ríkja­manna en ekki stæði til að opna her­stöð­ina aftur. Þetta snérist um að við­vera yrði hugs­an­lega meiri, eins og aukna loft­rým­is­gæslu – og þar með meiri nýt­ingu mann­virkja á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Engin ástæða virð­ist því vera til að gera of mikið úr þessum fréttum og að Banda­ríkja­menn séu í þann veg­inn að opna Kefla­vík­ur­her­stöð­ina aftur. Á það ber að líta að enn er í gildi varn­ar­samn­ingur milli ríkj­anna, auk þess sem Ísland er stofn­að­ili að NATO. Núver­andi varn­ar­um­svif á Íslandi, þ.m.t. vegna loft­rým­is­gæslu sem Banda­ríkja­menn hafa tekið virkan þátt í, byggja á þeim tveim stoðum. Ef hins vegar ein­hver fótur er fyrir auknum áhuga Banda­ríkja­manna á frek­ari nær­veru á Íslandi á ný er mjög brýnt að brugð­ist sé við af yfir­vegun.

Mik­il­vægt er að rifja upp sam­komu­lag sem gert var í kjöl­far brott­farar Banda­ríkja­manna frá Íslandi árið 2006. Þar er til­greint í ein­földu máli hvernig varn­ar­sam­starfi ríkj­anna skuli háttað eftir að fastri við­veru varn­ar­liðs nýtur ekki lengur við. Þar segir að ríkin hafi „með hlið­sjón af þeim breyt­ingum sem orðið hafa á örygg­is­málum í heim­inum [...] náð eft­ir­far­andi sam­komu­lagi um aðgerðir sem munu verða til þess að tryggja tví­hliða varn­ar­sam­starfið og leggja traustan grund­völl að fram­tíð­ar­sam­starfi ríkj­anna á sviði varnar- og örygg­is­mála.“

Nú er ekki alveg ljóst hvernig þetta sam­komu­lag hefur verið efnt, þó þátt­taka Banda­ríkj­anna í loft­rým­is­gæslu NATO sé lík­ast til sýni­leg­asta birt­ing þess. Hins vegar hlýtur ákvæðið um breyttar for­sendur – sem er í raun útgangs­punktur sam­komu­lags­ins – að kalla á að ríkin setj­ist að samn­inga­borð­inu og end­ur­skoði fram­kvæmd varn­ar­sam­starfs­ins á yfir­veg­aðan hátt, í stóru sam­hengi við NATO sam­starfið.

Þrátt fyrir að sam­skipti ríkj­anna hafi form­lega verið góð, að und­an­skil­inni við­var­andi tog­streitu vegna hval­veiða, má segja að Íslend­ingum hafi tek­ist óhöndug­lega upp varð­andi varnar- og örygg­is­mála­sam­starf ríkj­anna. Tog­streita ein­kenndi sam­starfið allt frá því Banda­ríkja­menn vildu draga úr umsvifum á Kefla­vík­ur­flug­velli snemma á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar.

Íslend­ingar gerðu kröfur um við­veru orr­ustu­þota, kröfur sem að ein­hverju leyti voru byggðar á því að halda uppi atvinnu á Suð­ur­nesjum fremur en örygg­is­fræði­legu mati. Einnig þver­neit­uðu íslensk stjórn­völd að taka nokkurn þátt í kostn­aði við rekstur og við­hald Kefla­vík­ur­flug­vallar, þrátt fyrir sífellt minni varn­ar­tengda umferð, en undir það síð­ast var hún orðin langt undir tíunda hluta notk­unar vall­ar­ins.

Á síð­ustu augna­blikum samn­inga­við­ræðna buðu íslensk stjórn­völd þó fram nokkra tugi millj­óna í kostn­að­ar­þátt­töku, en það reynd­ist of lítið og koma allt of seint. Samn­inga­tækni Íslands virð­ist í bak­sýn­is­spegl­inum hafa byggst á fremur illa ígrund­aðri „allt eða ekk­ert“ afstöðu, þar sem aldrei var gert ráð fyrir nið­ur­stöð­unni „ekk­ert“ – eins og reyndin síðan varð.


Er áhugi Bandaríkjamanna á Norðurslóðum og Íslandi að vakna á ný?


Óhætt er að segja að Banda­ríkja­menn hafi lítið látið sig Norð­ur­slóðir varða þar til á allra síð­ustu árum. Banda­ríkin er nú í for­ystu í Norð­ur­skauts­ráð­inu og hafa lagt mikla áherslu á að taka umhverf­is­mál föstum tökum. Ummæli Works ráð­herra nú má túlka á þann hátt að Banda­ríkja­menn vilji einnig láta meira til sín taka í örygg­is­málum Norð­ur­slóða.

Ástæðan er að hluta til breytt staða Rússa og segir hann að vegna auk­innar ógnar sem stafi af Rússum séu nor­rænir ráða­menn ólmir til auk­ins sam­starfs í öryggis- og varn­ar­málum. M.a. var það haft eftir ráð­herr­anum að vegna auk­innar umferðar rúss­neskra flug­véla umhverfis Ísland, kalli Íslend­ingar nú eftir auknum við­bún­aði Banda­ríkja­manna.

Þótt íslenskir ráða­menn hafi nefnt auknar ferðir rúss­neskra her­flug­véla í nágrenni lands­ins er vara­samt að taka þessi orð banda­ríska ráð­herr­ans um að Íslend­ingar upp­lifi mikla vá mjög alvar­lega. Stað­reyndin er sú að Rússar hófu þessi flug að nýju haustið 2006 og er vill­andi að tala um ein­hverja aukn­ingu sem túlka mætti sem beina ógn. Þetta ber þó að sjálf­sögðu að skoða í sam­hengi við fram­komu Rússa ann­ars staðar í Evrópu – þ.m.t. á norð­ur­slóðum – breyt­ingar á utan­rík­is­stefnu þeirra og þá stöðu sem komin er upp í sam­skiptum þeirra við önnur ríki.

Ef Banda­ríkja­menn eru í raun að sýna frum­kvæði er mik­il­vægt fyrir Íslend­inga að taka það föstum tökum. Hér stendur yfir stefnu­mótun í öryggis- og varn­ar­málum þar sem metnir eru þeir þættir sem ógna öryggi lands­ins og það er almennur vilji íslenskra stjórn­valda að sem best sam­starf geti tek­ist með ríkj­unum vegna þeirrar vinnu.

Án þess að farið sé í ein­hverja leiki við Banda­ríkja­menn er þó grund­vall­ar­at­riði að „halda kúl­inu“ og tala allra síst á þeim nótum sem gefið gætu til kynna að hér ríkti örvænt­ing gagn­vart Rússum eða ein­hverjum öðrum. Skyn­sam­legt væri að leggja áherslu á víð­tækt öryggis- og varn­ar­mála­sam­starf auk þeirrar her­verndar af hálfu Banda­ríkja­manna sem felst í varn­ar­samn­ingi ríkj­anna, óháð fastri við­veru banda­rísks her­afla hér.


Stafar Íslendingum einhver sérstök ógn af Rússum?


Stutta svarið við því er nei og ummæli um aukna hættu af Rússum vegna auk­inna umsvifa þeirra á norð­ur­slóðum, sem gripin eru á lofti og end­ur­óma án frek­ari skýr­inga, eru ekki upp­byggi­leg. Mik­il­vægt er að átta sig á því hvað felst í auknum umsvifum á norð­ur­slóðum – eru það kaf­báta­ferðir á Eystra­salti eða upp­bygg­ing her­stöðvar langt norð-austur í Íshafi?

Rússar eru óút­reikn­an­legir og engin ástæða til ann­ars en tor­tryggja gjörðir þeirra, en mik­il­vægt er þó að leggja ekki aukin umsvif í Norður-Íshafi að jöfnu við t.d. atburði á Krím­skaga. Helstu fræði­menn á sviði norð­ur­slóða­mála segja að meg­in­á­hersla þeirra sé á að við­halda stöð­ug­leika og stuðla að sam­vinnu á svæð­inu.

Yrði norð­ur­sigl­inga­leiðin, með­fram norð­ur­strönd Rússland til Asíu, reglu­legur val­kostur þýddi það rót­tæka breyt­ingu á land­fræðipóli­tísku umhverfi í Norður-Íshafi. Rússar hafa lagt í tals­verðar fjár­fest­ingar í höfnum og annarri nauð­syn­legri þjón­ustu með­fram þess­ari 17.500 km löngu strand­lengju. Aug­ljós­lega er því mik­il­vægt fyrir þá að sýna fram á hern­að­ar­lega getu til þess að stjórna svæð­inu.

Að sama skapi skal árétta að aðstæður í Íshafinu eru hrein­lega svo erf­iðar að ekk­ert ríki getur haldið úti sjálf­stæðum björg­un­ar­sveitum, nógu öfl­ugum til að bregð­ast við þegar slys ber að höndum, án þess að hern­að­ar­leg úrræði komi til. Það er því mikil ein­földun að tala eins og þarna sé um óyggj­andi merki útþenslu­stefnu Rússa að ræða.

Ekki skal þó gert lítið úr alvar­leika fram­ferðis Rússa í Úkraínu og utan­rík­is­stefnu þeirra, sem almennt er ögrandi, t.d. gagn­vart Norð­ur­lönd­unum og Eystra­salts­ríkj­unum. Samstaða Íslands með nágrönnum og banda­mönnum gagn­vart Rússum er mjög mik­il­væg. Brýnt er að Íslend­ingar sýni ábyrga fram­komu gagn­vart því örygg­is­mála­sam­starfi sem hefur verið í þróun á Norð­ur­lönd­unum með aðkomu Eystra­salts­ríkj­anna.

Breyttar aðstæður – þörf á endurskoðun varnarsamnings?


Óhætt er að segja að staða Íslands sé tals­vert breytt frá því að Varn­ar­samn­ing­ur­inn var gerður árið 1951. Þá voru Íslend­ingar van­máttugir þiggj­endur, höfðu ein­ungis land að bjóða gegn vernd og lítið til mál­anna að leggja í öryggis- og varn­ar­mála­sam­starfi. Þótt Ísland sé og muni ávallt verða van­mátt­ugt þegar kemur að her­vörnum höfum við nú margt annað að bjóða í slíku sam­starfi.

Um leið og mörkuð er þjóðar­ör­ygg­is­stefna væri lag að leggja grunn að nýju tíma­bili í sam­skiptum Banda­ríkj­anna og Íslands með end­ur­skoðun Varn­ar­samn­ings­ins, eða a.m.k. nýs sam­komu­lags um fram­kvæmd hans eins og gert var árið 2006 – og áður með sér­stökum bók­unum á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Þar gæti útgangs­punkt­ur­inn verið víð­tækt sam­starf, í sam­hengi við NATO aðild, þar sem eigin þjóðar­ör­ygg­is­stefna hins sjálf­stæða, full­valda ríkis er grund­vall­ar­at­riði.

Tvíhliða varn­ar­sam­starf Íslands og Banda­ríkj­anna byggði í upp­hafi á aðild beggja ríkja að NATO. Þær und­ir­stöður virt­ust fúna tals­vert á samn­ings­tím­anum eins og kom ber­lega í ljós vorið 2006 þegar Banda­ríkja­menn ákváðu ein­hliða að kalla varn­ar­liðið heim. NATO kom þá hvergi að málum og hvorki ráð­færðu Banda­ríkin sig við banda­lagið, né óskaði Ísland ráð­legg­inga þess þegar þar var komið sögu. Aðkoma banda­lags­ins í kjöl­farið var öll í skugga orð­ins hlutar.

Reynslan kennir því Íslend­ingum að ef Banda­ríkja­menn myndu eiga hér fasta við­veru á Íslandi að nýju – sama hvert umfangið gæti orðið – er lík­ast til affara­sæl­ast fyrir báða aðila að það byggi þá vand­lega á grunni sam­starfs og sam­eig­in­legrar aðildar ríkj­anna að NATO. Að sama skapi er mjög mik­il­vægt að breið póli­tísk sátt ríki um næstu skref og að utan­rík­is­ráð­herra og utan­rík­is­mála­nefnd eigi með sér gott sam­starf og sam­ráð um fram­haldið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár