„Staðan breytist frá degi til dags“

Flótta­manna­hóp­ur­inn frá Úkraínu er að vissu leyti öðru­vísi en hinir sem hingað koma, segir for­stöðu­maður Fjöl­menn­ing­ar­set­urs, en ekki liggur fyrir hversu margir eru komnir í lang­tíma­hús­næði. Búist er við 3.000 flótta­mönnum á þessu ári.

Upp­lýs­ingar um það hverju margir flótta­menn frá Úkraínu eru komnir í lang­tíma­hús­næði liggja ekki fyrir en það hefur reynst erfitt að halda utan um tölur um það hvar fólkið er statt þar sem margir leita hjálpar utan kerf­is­ins. Búist er við því að í heild­ina muni um 3.000 flótta­menn koma hingað til lands á þessu ári.

Nichole Leigh Mosty for­stöðu­maður Fjöl­menn­ing­ar­set­urs, sem veitir stuðn­ing við flutn­ing til og frá Íslandi, segir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að þau séu ekki með yfir­sýn yfir það hversu margir flótta­menn frá Úkraínu séu komnir með hús­næði. Fólkið sé dreift víða um land allt og ekki séu allir sem til þeirra koma að til­kynna að þau hafi fundið hús­næði. Sumir hafi leigt hús­næði af einka­að­ila og aðrir fengið skjól yfir höf­uðið sam­hliða atvinnu.

Aðgerðar­stjóri teym­is um mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu, Gylfi Þór Þor­steins­son, segir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að vinnan við hús­næð­is­leit fyrir flótta­fólk hafi gengið ágæt­lega. Hann telur það þó ljóst að skortur á hús­næði geti orðið vanda­mál þegar líður á haustið.

1.487 einstaklingar sótt um alþjóðlega vernd á þessu ári

Eftir að stríðið í Úkraínu braust út hafa 975 flótta­menn þaðan sótt um alþjóð­lega vernd hér á landi. Alls hafa 1.487 ein­stak­lingar sótt um alþjóð­lega vernd á Íslandi á tíma­bil­inu frá og með 1. jan­úar til og með 12. maí.

871 umsókn um alþjóð­lega vernd barst stjórn­völdum árið 2021 sem var fjölgun um 33 pró­sent frá 2020 þegar umsókn­irnar voru 654. Heims­far­aldur COVID-19 hafði tölu­verð áhrif á umsóknir um alþjóð­lega vernd en fjöldi umsókna árið 2021 voru örlítið fleiri en árið 2019 þegar þær voru 867. Árið 2018 voru þær 800.

Fjöldi umsókna um alþjóð­lega vernd tíföld­uð­ust á fjórum árum þegar þær fóru úr 118 árið 2012 í 1.132 árið 2016. Í kjöl­farið réð­ust stjórn­völd í aðgerðir til að draga úr „fjölda ber­sýni­lega til­hæfu­lausum umsókn­um“ og fækk­aði umsóknum í 1.096 árið 2017 og 800 árið á eft­ir. Frum­varp um breyt­ingar á útlend­inga­lögum sem nú er í sam­ráðs­gátt stjórn­valda­var fyrst lagt fram að Sig­ríði Á. And­er­sen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, vorið 2018 og var þá fyrst og fremst við­brögð við mik­illi fjölgun umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hér á landi, ekki síst frá fólki sem þegar hefur verið veitt vernd í öðrum ríkjum Evr­ópu.

Útlend­inga­stofnun hefur aðeins upp­lýs­ingar um það hvar umsækj­endur um vernd dvelja á meðan þeir njóta þjón­ustu sem slíkir. Stofn­unin hafi ekki upp­lýs­ingar um það hvar ein­stak­ling­arnir dvelja eftir að þjón­ust­unni lýkur.

Skortur á húsnæði gæti orðið vandamál þegar líður á haustið

Gylfi Þór segir að í fyrsta lagi þurfti að fjölga skamm­tíma­lausnum fyrir Útlend­inga­stofnun þar sem úrræði þeirra hafi verið nær á þrotum áður en stríðið í Úkraínu kom til. Í öðru lagi sé að finna svokölluð „skjól“, sem er milli­bú­setu­úr­ræði, þar sem fólk býr í allt að þrjá mán­uði. Í þriðja lagi sé verið að leita eftir hús­næði sem sveit­ar­fé­lög geta svo notað sem lang­tíma­úr­ræði.

„Miðað við þann fjölda sem kom­inn er til lands­ins og ef við gefum okkur að sama flæði verði út árið, má búast við um 3.000 flótta­mönnum til lands­ins á þessu ári í það heila. Þá er ekki bara litið til Úkraínu, það er langtum meiri fjöldi en við höfum nokkurn tíma áður séð og því ljóst að skortur á hús­næði gæti orðið vanda­mál þegar líður inn í haustið. Eins og þekkt er, er hús­næð­is­skortur víðs­vegar um landið,“ segir Gylfi Þór.

Öðruvísi hópur en þau eru vön – Almenningur með faðminn opinn

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Fjöl­menn­ing­ar­setri eru bæði úrræðin sem skil­greind eru sem „skjól“ full en „staðan breyt­ist frá degi til dags“ þar sem mikil hreyf­ing er á fólki. 130 ein­stak­lingar eru nú á Bifröst og 129 Hótel Swan á Vatns­stíg. Fjöl­menn­ing­ar­setur er með biðlista vegna fólks sem þarf að flytja úr 1. stigs hús­næði á vegum Útlend­inga­stofnun og/eða fólks sem gistir enn hjá fólk sem hefur tekið á móti þeim, á borð við vini, fjöl­skyldu­með­limi eða sjálf­boða­liða.

Nichole segir að flótta­manna­hóp­ur­inn frá Úkraínu sé að vissu leyti öðru­vísi en hinir sem hingað koma. Þetta fólk komi beint úr aðstæð­unum hingað til lands og fari jafn­vel strax í það að finna sér vinnu og hús­næði sjálft. Aðrir sem koma lengra að hafi verið í umsjón ann­arra ríkja og þurfi oft meiri aðstoð. „Það er ótrú­lega mik­ill munur á því að vera að koma úr flótta­manna­búðum en beint úr aðstæð­unum,“ segir hún í sam­tali við Kjarnann. Hún bendir jafn­framt á að almenn­ingur sé með „faðm­inn opinn“ gagn­vart flótta­fólki frá Úkraínu en það eigi síður við um hinn hóp­inn. „Ég held ég hafi aldrei séð eins margar hendur og ég sé núna sem vilja koma fólki í skjól.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár