Einstök lönd geta ekki „bólusett sig út úr“ faraldrinum

Þrjú ríki heims hafa bólu­sett yfir 70 pró­sent íbúa. Ísland er eitt þeirra. Hlut­fallið er undir 1,5 pró­senti í Afríku. Ef ekki næst að koma því í 10 pró­sent bráð­lega verður það „ör á sam­visku okkar allra“ enda nóg til af bólu­efnum, segir sér­fræð­ingur WHO.

„Ætlum við virki­lega að sætta okkur við 1,5 pró­sent bólu­setn­ing­ar­hlut­fall í Afríku á meðan það er þegar orðið 70 pró­sent í sumum löndum?“

Þetta sagði Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, for­stjóri Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) á blaða­manna­fundi á föstu­dag þar sem hann og aðrir sér­fræð­ingar fóru yfir stöð­una á heims­far­aldri kór­ónu­veirunnar. Hann sagði ástandið í Afríku hafa versnað hratt og dauðs­föllum fjölgað um 80 pró­sent á aðeins fjórum vikum. Þar væri eins og víð­ast ann­ars staðar hið bráðsmit­andi delta-afbrigði veirunnar orðið ráð­andi. Staðan í Afríku væri þó gjör­ó­lík þeirri sem er uppi í Evrópu og Banda­ríkj­unum þar sem bólu­setn­ing væri skammt á veg komin og sömu­leiðis skortir grund­vallar aðföng til heil­brigð­is­þjón­ustu á borð við súr­efni og hlífð­ar­fatnað fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk.

Að sama skapi væru sýna­tökur í fátækum ríkjum aðeins brot (innan við 2 pró­sent) af þeim fjölda sem rík­ari lönd eru að taka. „Því er heim­ur­inn blindur þegar kemur að því að skilja sjúk­dóm­inn og hvernig hann breyt­ist. Án betri skimunar á alþjóða­vísu getum við ekki barist við sjúk­dóm­inn í eld­lín­unni og dregið úr hætt­unni á því að ný og hættu­legri afbrigði komi fram.“

[links]WHO stefnir enn að því mark­miði að hvert ríki heims verði búið að bólu­setja að minnsta kosti 10 pró­sent íbúa sinna fyrir lok sept­em­ber, að minnsta kosti 40 pró­sent fyrir lok árs og um 70 pró­sent um mitt næsta ár. „Við erum langan veg frá því að ná þessum mark­miðum,“ sagði Ghebr­eyesus.

Um helm­ingur ríkja heims hefur náð þeim áfanga að bólu­setja 10 pró­sent íbú­anna og innan við fjórð­ungur 40 pró­sent þeirra. Aðeins þrjú lönd hafa full­bólu­sett 70 pró­sent íbú­anna: Malta (86%), Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin (71%) og Ísland (75%).

Afríka tilbúin en fær ekki bóluefni

Nær ómögu­legt er talið miðað við stöð­una nú að mik­ill meiri­hluti Afr­íku­ríkja nái hinu 10 pró­senta mark­miði WHO fyrir lok sept­em­ber. Stofn­unin hefur ítrekað kallað eftir því að þjóðir heims sam­ein­ist um það mark­mið að bólu­setja sem flesta, alls staðar. „Enn er dreif­ing bólu­efna órétt­lát,“ sagði for­stjóri stofn­un­ar­innar.

Mörg Afr­íku­ríki séu til­búin með sínar bólu­setn­inga­á­ætl­anir, búin að und­ir­búa fjölda­bólu­setn­ingar. Það sem hins vegar vantar eru bólu­efni.

„Innan við tvö pró­sent af öllum skömmtum sem hefur verið dreift í heim­inum hafa farið til Afríku,“ sagði Ghebr­eyesus og end­ur­tók orð sín: „Innan við tvö pró­sent.“ Það sé gríð­ar­lega alvar­leg staða fyrir alla heims­byggð­ina ef takast á að vinna bug á far­aldr­inum.

Hann hvatti enn og aftur stjórn­völd í efn­aðri ríkjum að leggja meira af mörkum til COVAX-sam­starfs­ins. Slík fjár­fest­ing væri aðeins brot af því sem rík­is­stjórnir væru að setja í bar­átt­una gegn COVID-19. „Spurn­ingin er ekki hvort að heims­byggðin hafi efni á að fara í þessar fjár­fest­ingar heldur hvort að hún hafi efni á að gera það ekki.“

Algjörlega óásættanlegt

Bruce Aylward, læknir, far­alds­fræð­ingur og einn helsti ráð­gjafi for­stjóra WHO, segir að sprengja í dauðs­föllum af völdum COVID-19 í Afríku síð­ustu vikur ætti að vera „algjör­lega óásætt­an­leg“ á alþjóða­vísu. „Það er algjör­lega óásætt­an­legt að á tíma þar sem öflug og árang­urs­rík bólu­efni eru komin til sög­unnar, á tíma þegar millj­örðum skammta af þeim hefur verið dreift til ákveð­inna heims­hluta að dauðs­föllum hafi fjölgað um 80 pró­sent í Afríku. Algjör­lega óásætt­an­legt.“

Hann sagði stefnu­breyt­ingar þörf. Með sama fram­haldi myndu mark­mið WHO um 10 pró­sent bólu­setn­ing­ar­hlut­fall í Afríku ekki nást í sept­em­ber. „Það ætti að vera ör á sam­visku okkar allra,“ sagði hann. Engin raun­veru­leg ástæða væri fyrir mis­skipt­ing­unni, „nóg af bólu­efni er til í heim­inum, nóg af pen­ingum er til í heim­inum, næg þörf fyrir og næg eft­ir­spurn eftir bólu­efnum svo auð­veld­lega yrði hægt að ná 30-40 pró­sent hlut­falli þar sem bólu­efni yrðu gerð aðgengi­leg“.

Stóra verk­efnið hans núna, sem og ann­arra hjá WHO, væri að finna leiðir til að koma meira bólu­efni inn á færi­bandið – koma því til fátæk­ari ríkja.

Ákvörðunin liggur hjá nokkrum forstjórum

Hvenær munu lönd Afríku ná nægi­lega miklu ónæmi, hinum svo­kall­aða hjarð­ó­næm­is­þrös­k­uldi, spurði hann svo og svar­aði: „Því miður liggur ákvörðun þar um ekki hjá Afr­íku­ríkj­unum sjálfum. Núna er ákvörð­un­ar­valdið hjá hópi for­stjóra og stjórna stórra fyr­ir­tækja sem selja bólu­efni, hjá löndum sem fram­leiða bólu­efni og hjá löndum sem hafa yfir að ráða samn­ingum um meiri­hluta alls bólu­efnis heims­ins.“

Spurður hvort að 10 pró­sent bólu­setn­ing­ar­mark­mið fyrir Afríku í sept­em­ber væri þá ekki óraun­hæft svar­aði hann að í ljósi þess sem hann hefði rakið væri „hræði­legt“ að segja slíkt. Við ættum aldrei að tala um hvað við teljum eiga eftir að ger­ast í Afríku sam­an­borið við Banda­ríkin eða Evrópu. Við ættum að setja sömu mark­mið, hafa sama metnað alls staðar. Þannig að ef Evrópa nær 60 eða 70 pró­sent hlut­falli í bólu­setn­ing í lok árs – af hverju ætti Afríka ekki að ná því líka?“

Þegar og ef örvunarskammtar verða þarfir

Að minnsta kosti tvö ríki, Ísrael og Ísland, hafa ákveðið að gefa full­bólu­settum örv­un­ar­skammt á næstu dögum. Í Ísrael er verið að bólu­setja eldra fólk með þriðja skammti Pfizer-BioNTech bólu­efn­inu, og á Íslandi er að hefj­ast end­ur­bólu­setn­ing fólks sem fékk Janssen-bólu­efnið. Þeim mun standa ýmist skammtur af Pfizer eða Moderna til boða.

WHO hefur enn ekki mælt með örv­un­ar­skömmtum en segir tvennt skipta máli þegar komi að end­ur­bólu­setn­ingu fólks, „þegar og ef“ hennar ger­ist þörf, sagði Ayward um þetta mál á blaða­manna­fund­inum. Í fyrsta lagi væri það hversu lengi bólu­efnin veittu vernd og í öðru lagi hvort að þau veittu vernd gegn nýjum afbrigðum.

[adspot]

„Núna er það alveg ljóst að bólu­efnin virð­ast hafa góð áhrif gegn alvar­legum veik­indum, sjúkra­húsinn­lögnum og dauða,“ sagði hann en að stöðugt væri safnað nýjum gögnum þar um. Helsta for­gangs­málið væri að gera sér grein fyrir því að við erum stödd í heims­far­aldri þar sem allir þurfi að vinna saman. „Við getum ekki hugsað um for­gang fyrir ákveðið land eða ákveðið sam­fé­lag heldur nálg­ast verk­efnið á heims­vísu.“

Eins og að pissa í skóinn sinn

For­gangs­verk­efni væri að bólu­setja alla aldr­aða, heil­brigð­is­starfs­menn og fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma til að hægja á útbreiðslu veirunnar og minnka líkur á nýjum afbrigðum. Síðan sé hægt að huga að öðrum hópum. „Svo ef við ætlum að breyta for­gangs­röð­un­inni þá ætti breyt­ingin ekki að vera í for­gangs­hóp­unum sjálfum heldur hvar við verðum að bólu­setja for­gangs­hópana.“

Hann sagði það eins og að pissa í skó­inn sinn fyrir ein­stök lönd að halda að þau geti „bólu­sett sig út úr þessu“ án þess að veita stöð­unni ann­ars staðar í ver­öld­inni athygli.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár