Ríkisstjórnin auglýsti í Fréttablaðinu fyrir 800 þúsund

Tvær aug­lýs­ingar sem rík­is­stjórnin birti í sínu nafni í byrjun árs kost­uðu sam­tals yfir 2,5 millj­ónir króna. Hæsta upp­hæðin fór til stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins, 365 miðla.

Birting tveggja aug­lýs­inga í nafni rík­is­stjórnar Íslands í völdum fjöl­miðlum í byrjun árs­ins kost­aði rúm­lega 2,5 millj­ónir króna. Lang­hæsta upp­hæðin fór til Frétta­blaðs­ins, 800 þús­und krónur, auk þess sem aug­lýst var á Vísi.is fyrir 168.000 krónur. Aug­lýs­ingar hjá miðlum 365 kost­uðu því tæpa milljón króna.

Aug­lýs­ingar í Morg­un­blað­inu kost­uðu 459 þús­und krónur og hjá mbl.is ríf­lega 70 þús­und krónur. Aug­lýs­ingar hjá RÚV kost­uðu 197.700 krónur og í Frétta­tím­anum 193.800. Aug­lýs­ingar hjá DV og dv.is kost­uðu 135 þús­und og 94 þús­und krónur og aug­lýs­ingar hjá Press­unni tæp­lega 33 þús­und. Við­skipta­blaðið fékk 139.994 krónur fyrir aug­lýs­ingu þar.

Þetta kemur allt fram í svari Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Katrínar Júl­í­us­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um kostnað við aug­lýs­ingar rík­is­stjórn­ar­innar.

Ákvörðun um að birta aug­lýs­ing­arnar var tekin í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu að höfðu sam­ráði við fjár­mála­ráðu­neytið og eftir kynn­ingu í rík­is­stjórn­inni. Kostn­að­ur­inn við aug­lýs­ing­arnar var greiddur af ráð­stöf­un­arfé rík­is­stjórn­ar­innar. Ekki er áætlað að aug­lýsa frekar í nafni rík­is­stjórn­ar­innar.

Aug­lýs­ing­arnar voru harð­lega gagn­rýndar af stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum. Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði við Vísi.is um hreinar og klárar áróð­urs­aug­lýs­ingar að ræða. „Okkur finnst þetta mjög und­ar­leg ráð­stöfun á almannafé, enda um hreinar áróð­urs­aug­lýs­ingar að ræða en ekki neinar upp­lýs­ingar til almenn­ings um rétt sem fólk er að fá eða slíkt. Þá vekur athygli að fyr­ir­bærið „rík­is­stjórn Íslands“ stendur fyrir aug­lýs­ing­unum, en það fyr­ir­bæri er ekki til sem stjórn­ar­fars­leg ein­ing og hefur ekki kenni­tölu."

Björn Valur Gíslason, vara­for­maður Vinstri grænna, skrif­aði pistil á blogg­síðu sína snemma í jan­úar og sagði að með birt­ingu aug­lýs­ing­anna hefði rík­is­stjórnin hægri­flokk­anna gripið til þess ráðs að aug­lýsa meint ágæti sitt undir nafni rík­is­stjórnar Íslands. „Það hlýtur að telj­ast vera nokkuð sér­stök aðgerð og til vitnis um lítið sjálfs­traust að þurfa að kaupa heil­síður í fjöl­miðlum í þessum til­gangi og leita allt aftur í Hrunárin eftir hag­stæðum sam­an­burði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár