Flóttafólk öðlast rétt á námslánum

Breyt­ingar hafa verið gerðar á úthlut­un­ar­reglum Lána­sjóðs íslenskra náms­manna fyrir náms­árið 2018 til 2019. Meðal ann­ars eiga ein­stak­lingar sem njóta alþjóð­legrar verndar eða hafa dval­ar­leyfi á Íslandi vegna mann­úð­ar­sjón­ar­miða nú rétt á náms­lánum.

Meðal helstu breyt­inga sem nú hafa verið gerðar á úthlut­un­ar­reglum Lána­sjóðs íslenskra náms­manna fyrir náms­árið 2018 til 2019 eru að fram­færslu­grunnur náms­manna inn­an­lands hækkar og ein­stak­lingar sem njóta alþjóð­legrar verndar eða hafa dval­ar­leyfi á Íslandi vegna mann­úð­ar­sjón­ar­miða eiga rétt á náms­lánum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

Í henni segir að jafn­framt að ein­stak­lingar sem fengið hafa alþjóð­lega vernd hér á landi eða hafa dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eigi nú rétt á náms­lánum hjá lána­sjóð­inum séu þeir komnir til lands­ins og stað­fest­ing Útlend­inga­stofn­unar á rétt­ar­stöðu þeirra eða dval­ar­leyfi liggi fyrir.

Stjórn Lána­sjóðs íslenskra náms­manna hefur sam­þykkt end­an­legar úthlut­un­ar­reglur fyrir náms­árið 2018 til 2019 og Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra stað­fest þær.

„Við styrkjum stöðu allra náms­manna með því að hækka fram­færslu­grunn LÍN, og það eflir íslenskt sam­fé­lag að fólk sem dvelst hér hafi tæki­færi til að mennta sig,“ segir Lilja.

Fram­færslu­grunnur náms­manna inn­an­lands hækkar úr 92 pró­sent af reikn­aðri fram­færslu þeirra í 96 pró­sent, segir í til­kynn­ing­unni. Þannig er ráð­gert að ráð­stöf­un­ar­tekjur náms­manna standi aðeins undir 4 pró­sent af reikn­aðri fram­færslu­þörf þeirra á náms­tím­anum í stað 8 pró­sent áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár