Ákveður innan tveggja daga hvort Bandaríkin muni svara efnavopnaárásinni í Sýrlandi

Donald Trump segir að hann muni taka ákvörðun innan tveggja daga hvort Banda­ríkin munu senda her­lið inn í Sýrland til að svara fyrir efna­vopna­árás­ina í Douma á sunnu­dag.

Trump á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Trump á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun að hann ætli að taka ákvörðun innan 24 til 48 klukku­stunda hvort Banda­ríkin muni svara efna­vopna­árásinni sem gerð var í Sýrlandi á sunnu­dag­inn. Talið er að í það minnsta 49 hafi lát­ist í Douma í Austur-Ghouta í Sýrlandi og grunur leikur á að efna­vopn hafi verið notuð. Stuttu eftir árás­ina hellti Trump úr skálum reiði sinnar á Twitter og for­dæmdi árás­ina.

[links]Örygg­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Jim Mattis, gat hvorki stað­fest né neitað því að Banda­ríkin muni svara fyrir árás­ina. Rúmt ár er síðan Trump gaf skipun fyrir loft­árásum vegna efna­vopna­árásar í Sýrlandi.

Ekkert ríki hefur ennþá lýst árásinni á hendur sér en sýr­lensk stjórn­völd liggja undir grun. Sýrlensk og rúss­nesk yfir­völd telja sig hins­vegar hafa sann­anir fyrir því að her­þot­urnar sem slepptu sprengj­unum á Douma hafi verið ísra­elskar.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár