Mynd: Heida Helgadottir

Vill leggja niður Útlendingastofnun

Magnús Davíð Norðdahl lögfræðingur hefur á sínum ferli verið áberandi í barátt­unni fyrir réttindum fólks á flótta. Hefur honum nokkrum sinnum tekist að snúa við ákvörðunum stjórn­valda, þegar vísa átti fólki úr landi. Afleið­ing­arnar eru þær að einstak­lingar hafa fengið að setjast að á Íslandi sem annars hefðu verið hraktir út í óvissuna.

„Mér finnst íslensk stjórn­völd ganga fram með ómannúð­legum hætti gagnvart hælis­leitendum og kerfið í heild sinni. Það eru mýmörg dæmi þess að þau hunsi ytri aðstæður fólks, jafnvel þegar tilefni er til þess að horft sé í þær. Svo er það allt ferlið, sem er stirt og erfitt. Við sem höfum starfað í þessum geira erum alveg sammála um það.“

Bendir Magnús á að lögin séu þannig að mikið af ákvæðum þeirra séu þess eðlis að beita þurfi mati, til dæmis þegar veitt eru dvalar­leyfi á grund­velli mannúðar­sjónarmiða. Er þá metið hversu alvarleg staða viðkomandi umsækjanda er og þær aðstæður sem senda á hann í aftur.

„Oft er þetta á einhverri hnífsegg hvorum megin málið lendir og þá fer það bara eftir viðkomandi starfs­manni. Þannig að það er mín skoðun að það sé hægt, með þeim lögum sem við nú höfum, að skipta algjör­lega um þann tón sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár