Munu þurfa að framvísa kórónuveirupassa til að fara út að borða

Evrópska bólu­setn­ing­ar­vott­orðið hefur verið notað vegna ferða­laga innan álf­unnar síðan í upp­hafi mán­aðar. Í Danmörku hefur fólk þurft að sýna sam­bæri­legt vott­orð til að sækja sam­komu­staði og svipað er nú uppi á ten­ingnum á Ítalíu og í Frakk­landi.

Með stafrænum kórónuveirupassa fæst QR kóði sem sýna þarf á hinum ýmsu stöðum.
Með staf­rænum kór­ónu­veirupassa fæst QR kóði sem sýna þarf á hinum ýmsu stöðum. Mynd: Pexels

Ítölsk stjórn­völd hafa ákveðið að skylda fólk sem ætlar að sækja ýmsa verslun og þjón­ustu til að sýna fram á bólu­setn­ingu eða nýlega nið­ur­stöðu úr COVID-prófi með sér­stökum kór­ónu­veirupassa.

Frá og með 6. ágúst verður fólk að fram­vísa slíkum passa við inn­göngu á íþrótta­leik­vanga, í söfn, kvik­mynda- og leik­hús, sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar, svo dæmi séu tekin, auk þess sem fólk verður að fram­vísa pass­anum ætli það sér að borða inn­an­dyra á veit­inga­húsi.

Passinn, sem verður staf­rænn, er hluti af evr­ópska bólu­setn­ing­ar­vott­orð­inu og heldur þar af leið­andi utan um upp­lýs­ingar um skimanir og bólu­setn­ingar. Þar má nálg­ast QR kóða sem þarf víða að fram­vísa. Allir sem hafa fengið í það minnsta einn skammt af bólu­efni eða hafa nýlega náð sér af COVID-19 geta fengið pass­ann. Aðrir munu þurfa að fara í skimun til að ná sér í pass­ann. Frá upp­hafi mán­aðar hefur evr­ópska bólu­setn­ing­ar­vott­orðið verið notað vegna ferða­laga fólks innan álf­unnar en stjórn­völd hafa í auknum mæli skyldað fólk til sýna fram á pass­ann til að sækja sér hina ýmsu þjón­ustu.

Sigur á EM gæti hafa fjölgað smitum

Fram kemur í umfjöllun The Guardian að Mario Draghi for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu hafi sagt á blaða­manna­fundi í vik­unni að nú þyrfti að grípa hratt til aðgerða þar sem smitum í land­inu væri farið að fjölga á ný. Efnahag lands­ins hefði farið batn­andi sam­hliða auknum bólu­setn­ingum sem hefðu haldið útbreiðslu veirunnar í skefjum. Blikur væur hins vegar á lofti vegna Delta afbrigðis kór­ónu­veirunnar enda dreifð­ist hún hraðar en önnur afbrigði og hvatti Draghi alla til að fara í sem fyrst í bólu­setn­ingu. „Ef ekki væri fyrir bólu­setn­ingar þá þyrftum við að loka öllu aftur,“ sagði hann.

Talið er að fögn­uður í kjöl­far sig­urs ítalska lands­liðs­ins á Evr­ópu­móti karla í fót­bolta eigi sinn þátt í fjölgun smita. Töluverð fjölgun smita hefur átt sér stað á und­an­förnum vikum og þá einna helst í Róm en fjöldi greindra smita innan hvers dags hefur fimm­fald­ast á síð­ustu tveimur vikum þar í borg.

Rúmlega helm­ingur Ítala er full­bólu­settur en veru­lega hefur hægst á bólu­setn­ingum að und­an­förnu. Það er talið stafa af tvennu, ungt fólk hefur frestað því að fara í bólu­setn­ingu þangað til eftir sum­ar­frí og svo eru aðrir sem ætla ein­fald­lega ekki í bólu­setn­ingu.

Víðar þarf að sýna passa

Í vik­unni var sam­bæri­legur passi inn­leiddur í Frakk­landi. Bólu­setn­ing­ar­vott­orð eða nei­kvæð nið­ur­staða úr skimun sem er ekki eldri en 48 klukku­stunda gömul þarf til þess að sækja hina ýmsu þjón­ustu eða menn­ingu á stöðum sem geta tekið við fleiri en 50 gestum í Frakk­landi.

Í Danmörku hefur slíkur passi verið í gildi síðan í byrjun þessa mán­aðar. Fólk þarf að sýna pass­ann ætli það sér að heim­sækja söfn, kvik­mynda- og leik­hús, dýra­garða og aðra sam­komu­staði. Þá er gerð krafa um fram­vísun slíks passa á veit­inga­húsum og börum. Kröf­urnar sem gerðar eru í Danmörku eru þó ekki jafn stífar og á Ítalíu og Í Frakk­landi. Passinn er gef­inn út til þeirra sem hafa fengið bólu­setn­ingu eða geta sýnt fram á fyrra smit. Annars þarf fólk að geta sýnt fram á nei­kvæða nið­ur­stöðu úr PCR prófi sem er ekki eldri en 96 klukku­stunda gam­alt eða nei­kvæða nið­ur­stöðu úr hraða­prófi sem er ekki eldri en 72 klukku­stunda gam­alt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár