563 nefndir ríkisstjórnarinnar fyrir 1,1 milljarð

Rík­is­stjórnin hefur skipað 536 nefndir á kjör­tíma­bil­inu. Mennta­mála­ráð­herra hefur skipað flestar, 150, en utan­rík­is­ráð­herra fæstar, sjö. Félags­mála­ráð­herra hefur eytt mestu fé í sínar nefndir, 437 millj­ónum króna.

Illugi Gunnarsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafa skipað um 190 nefndir í sínum ráðuneytum á kjörtímabilinu.
Illugi Gunn­ars­son, Gunnar Bragi Sveins­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hafa skipað um 190 nefndir í sínum ráðu­neytum á kjör­tíma­bil­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa skipað 536 nefndir á kjör­tíma­bil­inu. Þar af er nákvæm­lega helm­ingur skip­aður af frum­kvæði ráð­herra en hinn helm­ing­ur­inn eru lög­bundnar nefndir. Af þessum 536 nefndum höfðu 124 lokið störfum í vor, eða rúmur fimmt­ungur. Kostn­aður vegna hópanna er alls rúmur 1,1 millj­arður króna, en kostn­aður er afar mis­jafn eftir ráðu­neytum. Til að mynda kost­uðu nefndir utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins ekki neitt, en félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra greiddi 437 millj­ónir til sinna nefnda.

[adspot]

Hátt í 3.000 nefndarmenn

Alls hafa 2.910 ein­stak­lingar unnið í þessum nefndum, verk­efn­is­stjórnum eða starfs­hópum ráð­herr­anna. Lang­flestir búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og er hlut­fall kvenna og karla til­tölu­lega jafnt, að und­an­skildum hópum sem unnið hafa fyrir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins, þar sem hlut­fall kvenna var 34 pró­sent.

Þetta kemur fram í svörum ráð­herr­anna við fyr­ir­spurn Bjarkeyjar Olsen Gunn­ars­dóttur, þing­manns Vinstri grænna. Bjarkey lagði fram fyr­ir­spurnir til ráðu­neyt­anna í apríl síð­ast­liðnum þar sem meðal ann­ars var spurt um heild­ar­fjölda nefnda, heild­ar­kostnað, fjölda nefnda sem ráð­herra skip­aði að eigin frum­kvæði og hversu margar hefðu lokið störfum. Þá var spurt um fjölda nefnd­ar­manna, kynja­hlut­fall og búsetu nefnd­ar­manna. Svör ráð­herr­anna mið­ast við upp­haf kjör­tíma­bils­ins, vorið 2013, til vors­ins 2016. Síðast var svar umhverfis- og auð­linda­ráð­herra birt á síðu Alþingis, föstu­dag­inn 5. ágúst.

Langflestar nefndir hjá Illuga

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur skipað lang­flestar nefndir, 150 tals­ins. Þar af eru lang­flestar lög­bundnar, eða 121, og heild­ar­kostn­aður fimm millj­ónir króna. Alls störf­uðu 587 manns í nefndum, verk­efn­is­stjórnum eða starfs­hópum ráðu­neyt­is­ins. Af þessum 150 nefndum höfðu þó ein­ungis sjö lokið störfum. Hlutfall kvenna er 40 pró­sent og búa 84 pró­sent nefnd­ar­manna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Dýrustu nefndirnar

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur eytt mestu fé í þær nefndir sem hún skip­aði. Kostn­að­ur­inn var alls 437 millj­ónir króna fyrir 63 nefndir, þar af var 41 skipuð af frum­kvæði ráð­herra. 500 manns störf­uðu í hóp­unum, þar af voru konur í meiri­hluta, eða 53 pró­sent. Búseta nefnd­ar­manna er ekki til­greind í svari ráð­herra. 11 nefndir af 63 hafa lokið störfum.

Þrír ráðherrar, 74 nefndir

OInn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur skipað 74 nefndir á kjör­tíma­bil­inu, þar af 43 að eigin frum­kvæði. Þrír ráð­herrar hafa setið í stólum á tíma­bil­inu, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sem var um hríð dóms­mála­ráð­herra, og síð­ast Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra. 20 nefndir sem ráð­herra skip­aði að eigin frum­kvæði hafa lokið störfum, staða lög­bund­inna nefnda er ekki til­greind í svar­inu. Heild­ar­fjöldi nefnd­ar­manna var 412, þar af voru karlar 58 pró­sent. 78 pró­sent nefnd­ar­manna eru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Heild­ar­kostn­aður vegna nefnd­anna var 251 milljón og var það næst­mesti kostn­að­ur­inn á eftir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra.

Skakkt kynjahlutfall

Kynja­hlut­fall nefnd­ar­manna í nefndum sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra var ójafn­ast, en karlar voru 66 pró­sent nefnd­ar­manna. Ráð­herr­arnir hafa verið tveir, fyrst Sigurður Ingi Jóhanns­son og svo Gunnar Bragi Sveins­son, en svarið nær ein­ungis til ráð­herra­tíðar Sigurðar Inga. Hann skip­aði 35 nefndir, þar af 25 að eigin frum­kvæði. 15 nefndir hafa lokið störfum. Kostn­aður við hina 174 nefnd­ar­menn voru 174 millj­ónir. 79 pró­sent þeirra voru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Nefndarmenn utan af landi

Hæsta hlut­fall nefnd­ar­manna sem býr utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er í nefndum umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, en 32 pró­sent búa á lands­byggð­inni. Ráðherra hefur skipað 56 nefndir með 311 nefnd­ar­mönnum inn­an­borðs. Flestar, eða 41, voru skip­aðar að frum­kvæði ráð­herra, sem fyrst var Sigurður Ingi Jóhanns­son, þegar ráðu­neytið var hluti af atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu, og svo Sigrún Magn­ús­dóttir þegar ráðu­neyt­inu var skipt upp. Kostn­aður var 54 millj­ónir og kynja­hlut­fall nokkuð jafnt.

102 milljónir í 33 nefndir

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, hefur skipað 35 nefndir, þar af 19 að eigin frum­kvæði. Sex hafa lokið störfum. Heild­ar­fjöldi nefnd­ar­manna er 173 og kynja­hlut­fall nokkuð jafnt. 84 pró­sent þeirra búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og var kostn­aður vegna nefnd­anna 102 millj­ónir króna.

Höfuðborgarnefndir

BjarnNær allir nefnd­ar­menn hjá Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 97 pró­sent. 46 pró­sent hinna 214 nefnd­ar­manna í 44 nefndum ráð­herra eru konur og 54 pró­sent karlar. Af 44 nefndum eru lang­flestar skip­aðar að frum­kvæði ráð­herra, eða 36. 18 hafa lokið störfum. Kostn­aður vegna nefnd­anna var 47 millj­ónir króna.

Fleiri konur en karlar

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur skipað 46 nefndir, þar af 32 að eigin frum­kvæði. 13 hafa lokið störfum og voru alls 283 manns í nefnd­unum. Eins og hjá félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, voru konur í meiri­hluta, eða 53 pró­sent og búseta nefnd­ar­manna ekki til­greind. Heild­ar­kostn­aður var 106 millj­ónir.

190 í 28 nefndum

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra skip­aði 28 nefndir á sínu tíma­bili, þar af 18 að eigin frum­kvæði. Kostn­aður var 110 millj­ónir og nefnd­ar­menn voru 190 tals­ins. Kynja­hlut­fall var nokkuð jafnt, karlar 52 pró­sent og konur 48 pró­sent. 75 pró­sent nefnd­ar­manna voru búsettir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sex nefndir höfðu lokið störfum þann 1. mars 2016.

Enginn kostnaður og langfæstar nefndir

Lang­fæstar nefndir hafa verið skip­aðar af utan­rík­is­ráð­herra. Lilja Dögg Alfreðs­dóttir tók við af Gunnari Braga Sveins­syni í vor, og hefur engar nefndir skipað síðan þá. Gunnar Bragi skip­aði sjö nefndir, þar af voru fjórar skip­aðar að hans frum­kvæði. Þrjár nefndir hafa lokið störfum. Heild­ar­fjöldi nefnd­ar­manna var 66, 56 pró­sent karlar. Kostn­aður ráðu­neyt­is­ins við nefnd­irnar var eng­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár