María hættir – Vill ekki taka ábyrgð á vanfjármagnaðri stofnun

María Heim­is­dóttir hefur sagt upp störfum sem for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands. Hún seg­ist ekki vilja taka ábyrgð á van­fjár­magn­aðri stofnun.

María Heimisdóttir.
María Heim­is­dóttir. Mynd: Aðsend mynd

„Það hefur ekki [...] tek­ist að styrkja rekstr­ar­grund­völl [Sjúkra­trygg­inga] til að ná ásætt­an­legum árangri – að við getum rækt lög­boðnar skyldur okkar með sóma og boðið sam­keppn­is­hæf laun. Við þessar aðstæður treysti ég mér því miður ekki til að bera ábyrgð á okkar mik­il­vægu verk­efnum.“

Þetta skrif­aði María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands, í bréfi til sam­starfs­manna sinna er hún til­kynnti þeim um þá ákvörðun sína að segja upp störfum. Stundin greinir frá þessu og í þeirri frétt kemur fram að Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hafi fengið upp­sagn­ar­bréf Maríu um miðja síð­ustu viku. Upp­sögnin var að því er fram kemur í Stund­inni einnig til umræðu á stjórn­ar­fundi SÍ sl. fimmtu­dag.

Svandís Svav­ars­dóttir, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, skip­aði Maríu í stöðu for­stjóra Sjúkra­trygg­inga haustið 2018 eða fyrir rúm­lega fjórum árum. Hún tók við emb­ætt­inu af Stein­grími Ara Arasyni.

María var áður fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Land­spít­al­ans. Hún er læknir að mennt en hefur auk þess lokið MBA-námi með áherslu á stjórnun í heil­brigð­is­þjón­ustu og dokt­ors­námi í lýð­heilsu­fræðum.

Heilbrigðisráðherra segir synd að sjá Maríu hverfa frá störfum

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra var inntur eftir við­brögðum við upp­sögn Maríu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi síð­degis. Hann seg­ist virða ákvörðun Maríu en að það væri synd að sjá hana hverfa frá störfum, hún hafi staðið sig vel, ekki síst á krefj­andi tímum í gegnum heims­far­aldur.

„Það er komið nóg af stefnu- og ráða­leysi rík­is­stjórn­ar­innar í heil­brigð­is­málum,“ sagði Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem spurði Willum hvað þurfi til svo að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Vinstri græn snúi frá svelti­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í heil­brigð­is­málum.

Willum svar­aði með því að segj­ast binda vonir við að 100 milljón króna auka­fram­lag til Sjúkra­trygg­inga Íslands muni skipta máli. „Við þurfum síðan vinna áfram að því að bæta kerfin og styrkja stofn­un­ina í flók­inni samn­inga­gerð.“

Frétt Stund­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár