Viðtal

Menning er gáttin að sam­fé­lags­legri þátt­töku

Vigdís Jak­obs­dóttir, list­rænn stjórn­andi Lista­há­tíðar í Reykja­vík, er trú kjör­orði hátíð­ar­innar að list og menn­ing séu ekki for­rétt­indi heldur réttur allra. Raunar kjarna þessi orð sýn hennar sem byrj­aði að mót­ast þegar hún var önnur af tveimur græn­metisætum á Ísafirði, sextán ára með haus­inn á kafi í bókum. Nú er nýbúið að kynna dag­skrá lista­há­tíðar – sem er í takt við kjör­orðið. En lista­há­tíðin hefst 1. júní.

13 mín. lestur

Greining

Nasistar og nútím­inn á hvíta tjald­inu

Kvik­myndin The Zone of Interest í leik­stjórn Jonathan Glazer tekst á við hel­för­ina en á annan hátt en venja er fyrir, hún skoðar hryll­ing hennar í gegnum hvers­dags­legt líf ger­enda hennar, fjöl­skyldu sem bjó beint fyrir utan Auschwitz-útrým­ing­ar­búð­irnar. Myndin er ekki um þá fjöl­skyldu þó hún sé svo sann­ar­lega í miðju hennar. Leik­stjór­inn hefur sagt að myndin sé ekki gluggi inn í for­tíð­ina heldur við­vörun fyrir nútím­ann.

13 mín. lestur

ViðtalFatlað fólk beitt nauðung

Læstur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á vegum Akur­eyr­ar­bæjar. Hann bank­aði oft ítrekað og grét áður en starfs­fólk opn­aði fyrir honum. Móðir hans gerði end­ur­teknar athuga­semdir við að hann væri læstur inni og segir son sinn hafa verið van­ræktan. Fyrr á þessu ári greip hún til þess örþrifa­ráðs að flytja hann búferlum í annan lands­hluta til að fá mann­sæm­andi aðbúnað fyrir hann. Mál Sveins varpar ljósi á alvar­legar brotala­mir í þjón­ustu við fatlað fólk á Íslandi og sýnir hvernig mann­rétt­indi hafa verið virt að vettugi árum saman.

25 mín. lestur

Greining

Sér­fræð­ingur segir Ísland örugg­ara utan NATO

Sér­fræð­ingur í sviðs­myndum hern­að­ar­á­taka fyrir NATO telur minni líkur á að Ísland yrði skot­mark í stríði ef landið væri hlut­laust og stæði utan NATO. Dósent í örygg­is­fræðum við Háskóla Íslands er ósam­mála og segir það „geð­veiki“ að ganga úr NATO á þessum tíma­punkti. Meðal hlut­lausra ríkja utan varn­ar­banda­laga eru eyríkin Írland og Malta.

15 mín. lestur

FréttirPressa

„Ég get alveg séð fyrir mér þá sviðs­mynd að rík­is­stjórnin geti haldið áfram“

Í Pressu voru afleið­ingar þess að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra bjóði sig fram til for­seta ræddar. „Ég sé það ekki þannig að það þurfi að gera sér­stakan sátt­mála um áfram­hald­andi vinnu þess­ara þriggja flokka sem að í dag mynda rík­is­stjórn þó svo að það verði skipt um for­sæt­is­ráð­herra,“ sagði Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna.
FréttirForsetakosningar 2024

Katrín verður á bið­launum í fram­boði

Katrín Jak­obs­dóttir til­kynnti fyrr í dag hún hygð­ist biðj­ast lausnar sem for­sæt­is­ráð­herra og segja af sér þing­mennsku vegna þess að hún ætlar að gefa kost á sér til emb­ættis for­seta Íslands. Samkvæmt lögum um kjör þing­manna og æðstu emb­ætt­is­manna lands­ins mun Katrín fá greidd bið­laun í sex mán­uði eftir að hafa fengið lausn úr emb­ætti.

Mest lesið undanfarið ár