Fréttir

„Þetta er móðgun við okkur“

Heim­ildin ákvað að hringja í nokkra sem höfðu skrifað undir und­ir­skrifta­list­ann: Bjarni Bene­dikts­son hefur ekki minn stuðn­ing sem for­sæt­is­ráð­herra til þess ein­fald­lega að spyrja: hvers vegna? Svörin voru marg­vís­leg en þau átta sem svör­uðu sím­anum höfðu marg­vís­legar ástæður fyrir því en áttu það öll sam­eig­in­legt að treysta ekki Bjarna sökum fer­ils hans sem stjórn­mála­manns og sér í lagi síð­ustu mán­uði þar sem hann hefur farið frá því að vera fjár­mála­ráð­herra yfir í það að vera utan­rík­is­ráð­herra og loks for­sæt­is­ráð­herra.

8 mín. lestur

Fréttir

Páll Vil­hjálms­son aftur dæmdur fyrir röng og æru­meið­andi ummæli

Ummæli sem Páll Vil­hjálms­son hefur látið falla um Aðal­stein Kjart­ans­son voru dæmd dauð og ómerk í Hér­aðs­dómi í dag. Hann þarf að greiða 450 þús­und krónur í miska­bætur og sæta dag­sektum fari hann ekki að til­mælum dóms­ins. Páll var sak­felldur á síð­asta ári fyrir æru­meið­andi aðdrótt­anir um aðra blaða­menn Heim­ild­ar­innar.
Fréttir

Gagn­rýnir eig­anda rík­is­styrktrar kvik­mynda­há­tíðar í bréfi til Reykja­vík­ur­borgar

Starfs­maður kvik­mynda­há­tíð­ar­innar RIFF hefur sent bréf til Reykja­vík­ur­borgar og Kvik­mynda­mið­stöðvar Íslands þar sem eig­andi og fram­kvæmda­stjóri hennar, Hrönn Mar­in­ós­dóttir er gagn­rýnd. Í svari frá Hrönn segir meðal ann­ars að ásak­anir um að RIFF greiði laun undir lág­mark­s­töxtum séu ekki réttar.
Greining

Rík­is­stjórn mynduð utan um hræðslu við að mæta kjós­endum

Skoðað var hvort hægt yrði að kjósa til þings í næsta mán­uði, áður en for­seta­kosn­ing­arnar færu fram. Þreif­ingar við Viðreisn um að koma inn í rík­is­stjórn sem vara­dekk fyrir Vinstri græn hófust fyrir páska, og þar með tölu­vert áður en Katrín Jak­obs­dóttir til­kynnti um for­seta­fram­boð. Stjórn­ar­flokk­arnir vilja alls ekki fara í kosn­ingar í sumar eða næsta haust, þrátt fyrir að vera ekki sam­mála í stórum málum sem þarfn­ast úrlausnar, þar sem þeir eru að mæl­ast afleit­lega í könn­unum og litlar líkur á að sú staða muni lag­ast á næstu mán­uðum.

12 mín. lestur

Fólkið í borginni

„Ætli ég hafi ekki verið 12 ára þegar kýrnar voru seldar“

Ríkey Guð­munds­dóttir Eydal er safn­fræð­ingur og starfar á Borg­ar­sögu­safn­inu í Aðal­stræti. Hún er Reyk­vík­ingur í húð og hár en býr að þeirri reynslu að stunda búskap í sveit með ömmu og afa. Ríkey var tólf ára þegar kýrnar á bænum voru seldar á næsta bæ og amma og afi hættu búskap. Ömmu hennar fannst erfitt að hætta að sinna dýrum dægrin löng og dó sjálf stuttu eftir að kött­ur­inn á bænum dó.
Aðsent

Eru barn­eignir að verða for­rétt­indi sumra?

Síð­ast­lið­inn ára­tug hefur fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi verið allt að því í frjálsu falli. Þá benda rann­sóknir til þess að barn­leysi hafi auk­ist á Íslandi. Eru barn­eignir að verða for­rétt­indi sumra? Rann­sókn­ar­verk­efnið Áhrif stefnu­mót­unar og for­eldra­menn­ingar á barn­eignir á Íslandi stendur að mál­þingi sem fram fer föstu­dag­inn 12. apríl, á milli klukkan 12 og 17 – í Veröld.

Mest lesið undanfarið ár