RannsóknBrostnar vonir á Betra lífi

Fékk millj­ónir frá Reykja­vík­ur­borg þrátt fyrir rang­færslur í umsókn

Í umsókn til Reykja­vík­ur­borgar um styrk sagði Arnar Gunnar Hjálmtýs­son, rekstr­ar­að­ili áfanga­heim­ila Betra lífs, að þau væru í sam­starfi við Bergið headspace og Pieta, sam­tök sem kann­ast ekki við að vera eða hafa verið í sam­starfi við Betra líf. Ekkert virð­ist hafa verið gert hjá borg­inni til að sann­reyna það sem stóð í umsókn­inni.
GreiningForsetakosningar 2024

Halla Tóm­as­dóttir hefur bætt við sig því fylgi sem Halla Hrund hefur misst

Líkurnar á því að Katrín Jak­obs­dóttir setj­ist við borð­send­ann sem for­seti á rík­is­ráðs­fund­unum sem hún hefur setið síð­asta sex og hálfa árið sem for­sæt­is­ráð­herra hafa auk­ist og mæl­ast nú 49 pró­sent. Þrír fram­bjóð­endur er hnífjafnir í bar­átt­unni um að verða val­kost­ur­inn við hana á kjör­dag.
ViðtalForsetakosningar 2024

Orðræðan bendir til þess að þjóð­inni líði ekki vel

Halla Tóm­as­dóttir veit að hún fær ekki neina for­gjöf um traust hjá kjós­endum. Halla hefur enda alla tíð þurft að leggja hart að sér, komin af for­eldrum sem þurftu að rísa úr sárri fátækt og hefur upp­lifað að tapa öllu sínu. Hún hefur veru­legar áhyggjur af traust­leys­inu í sam­fé­lag­inu og segir blasa við að það þurfi kerf­is­breyt­ingar til að sigr­ast á þeim vanda. Þær breyt­ingar verði ekki inn­leiddar af einum for­seta sem þyk­ist hafa öll svörin heldur nýjan sam­fé­lags­sátt­mála.

25 mín. lestur

FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg reyndi að beita Hafró þrýst­ingi fyrir opinn íbúa­fund í Ölfusi

Lög­manns­stofan Logos sendi tölvu­póst fyrir hönd Heidel­berg með beiðni um að starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúa­fundi í Ölfusi. Starfs­mað­ur­inn hafði unnið rann­sókn um áhrif námu­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á fiski­mið og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upp­lýsa almenn­ing segir for­stjór­inn.
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagn­rýnir „for­dæma­lausa fram­kvæmd“ Heidel­berg í Ölfusi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagn­rýna umsögn um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Ölfusi. Fyr­ir­tækið ætlar að taka tæp 12 þús­und tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 ful­lest­uðum flutn­inga­bílum, af hafs­botni. Hafró telur fram­kvæmd­ina geta haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu og að efn­istakan geti breytt strand­lengj­unni til fram­búðar.
FréttirForsetakosningar 2024

Tæplega helm­ings­líkur á því að Katrín sigri í for­seta­kosn­ing­unum

Alls 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ing­ar, byggð­ar á síð­ustu gerðu skoð­ana­könn­un­um, sýna að lík­urnar á því að Katrín Jak­obs­dóttir sigri í for­seta­kosn­ing­unum eftir átta daga hafa auk­ist umtals­vert síð­ustu daga. Sig­ur­líkur Höllu Tóm­as­dóttur hafa líka batnað en líkur Höllu Hrundar Loga­dóttur hafa dreg­ist skarpt saman.

Mest lesið undanfarið ár