Fréttir

Hafa reynt að lægja öld­urnar og rætt við ung­menni sem vilja hefnd

Félag fanga hefur boðið stuðn­ing og þjón­ustu til ætt­ingja 16 ára pilts sem er í gæslu­varð­haldi á Hólms­heiði, grun­aður um hnífa­árás þar sem 17 ára stúlka lést af sárum sínum. Full­trúar félags­ins hafa einnig rætt við ung­menni sem vilja hefnd og reynt að lægja öld­urnar. Hefnd­ar­að­gerðir gætu haft „hræði­legar afleið­ingar fyrir þá sem hefna og ekki síður fyrir sam­fé­lagið," segir Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu.
AðsentKerfi sem bregst barnafjölskyldum

Þórdís Dröfn Andrésdóttir

Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóður hefur fæl­ing­ar­mátt fyrir íslenska náms­menn erlendis

„Það hlýtur að vera að fé leki úr sjóðnum – ekki til nýbak­aðra for­eldra heldur ein­fald­lega í kerfið sjálft,“ skrifar Þórdís Dröfn Andr­és­dóttir, nýbökuð móðir sem hefur þurft að berj­ast fyrir fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslum eftir að hún kom heim úr námi.

9 mín. lestur

GreiningStjórnleysi í ferðaþjónustu

Slys og dauðs­föll ferða­manna eru ekki skráð sér­stak­lega

Mikil umræða um öryggi ferða­manna fór af stað í kjöl­far slyss­ins í Breiða­merk­ur­jökli síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Fréttir af alvar­legum slysum meðal ferða­manna birt­ast reglu­lega í fjöl­miðlum og vekja gjarnan óhug. Hins vegar er hvergi að finna mið­læga skrá þar sem haldið er utan um tíðni slysa á meðal ferða­manna hér á landi.
Viðskipti

Segir sér­eigna­sparn­að­ar­úr­ræðið vera plástur á svöðu­sár

Heimild til þess að nýta sér­eign­ar­sparn­að­ar­úr­ræði stjórn­valda rennur út undir lok þessa árs. Sér­fræð­ingar hafa kallað eftir því að úrræðið verði fram­lengt enn frekar og mælt með því að breyta lögum til að það gagn­ist betur tekju­lægri hópum. Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­maður Flokks fólks­ins og for­maður Hags­muna­sam­taka heim­il­anna, segir slíkar hug­myndir ekki ráð­ast að rót vand­ans.
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

Engu mun­aði að stór­slys yrði í Kötlu­jökli 2018: „Mér leið eins og ég væri í hryll­ings­mynd“

Jón­as Weld­ing Jónas­son, fyrr­ver­andi leið­sögu­mað­ur, forð­aði 16 við­skipta­vin­um sín­um naum­lega frá því að lenda und­ir mörg­um tonn­um af ís í ís­hella­ferð í Kötlu­jökli sumar­ið 2018. „Það hefði eng­inn lif­að þarna af ef við hefð­um ver­ið þarna leng­ur. Þetta sem hrundi voru tug­ir tonna." Hann segir sum­arið ekki rétta tím­ann til að fara inn í íshella, eins og nýlegt banaslys á Breiða­merk­ur­jökli sýnir.

Mest lesið undanfarið ár