Fréttir

Dóttirin neyð­ist til að hitta ger­anda sinn í skól­anum: „Við erum dauð­hrædd um að missa hana“

Krist­jana Gísla­dóttir, móðir tæp­lega 14 ára stúlku, segir að sam­nem­andi dóttur hennar hafi brotið á henni kyn­ferð­is­lega í grunn­skóla þeirra í vor og að barna­vernd Kópavogs hafi ekki talið ástæðu til að kanna málið. Krist­jönu þykir Snæ­lands­skóli ekki koma til móts við dóttur hennar, sem þolir ekki að hitta dreng­inn dag­lega, og getur því ekki mætt til skóla.
Fréttir

Lögmaður kon­unnar segir lög­regl­una fara með ósann­indi

Lög­mað­ur konu sem var til rann­sókn­ar vegna meintr­ar byrlun­ar, af­rit­un­ar á upp­lýs­ing­um af síma og dreif­ingu á kyn­ferð­is­legu mynd­efni seg­ir ým­is­legt hrein­lega ósatt í yf­ir­lýs­ingu sem lög­regl­an birti á Face­book­síðu sinni í til­efni af nið­ur­fell­ingu máls­ins. „Lög­reglan er þarna að breiða yfir eigin klúður, eigin mis­tök,“ segir hann og kallar eftir opin­berri rann­sókn á vinnu­brögðum lög­regl­unnar.
Fréttir

Einvígi Guð­mundar Inga og Jódísar

Jódís Skúla­dóttir seg­ist hugsi yfir hversu dýru verði mála­miðl­anir Vinstri grænna í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu hafi verið keyptar. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son segir fylgi hreyf­ing­ar­innar í skoð­ana­könn­unum vera langt undir vænt­ingum en seg­ist full­viss um að þau muni upp­skera meira í kosn­ingum en kann­anir gefa til kynna. Guð­mundur Ingi er starf­andi for­maður Vinstri grænna og Jódís vara­for­maður þing­flokks­ins. Bæði gefa þau kost á sér í emb­ætti vara­for­manns hreyf­ing­ar­innar sem kosið verður um á lands­fundi VG um helg­ina.

Mest lesið undanfarið ár