Einvígi Guðmundar Inga og Jódísar
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son og Jódís Skúla­dóttir sækj­ast bæði eftir því að verða næsti vara­for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs. Kosið verður á lands­fundi um helg­ina. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Einvígi Guðmundar Inga og Jódísar

Jódís Skúla­dóttir seg­ist hugsi yfir hversu dýru verði mála­miðl­anir Vinstri grænna í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu hafi verið keyptar. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son segir fylgi hreyf­ing­ar­innar í skoð­ana­könn­unum vera langt undir vænt­ingum en seg­ist full­viss um að þau muni upp­skera meira í kosn­ingum en kann­anir gefa til kynna. Guð­mundur Ingi er starf­andi for­maður Vinstri grænna og Jódís vara­for­maður þing­flokks­ins. Bæði gefa þau kost á sér í emb­ætti vara­for­manns hreyf­ing­ar­innar sem kosið verður um á lands­fundi VG um helg­ina.

Báðir fram­bjóð­endur til emb­ættis vara­for­manns Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs segia fylgi hreyf­ing­ar­innar í nýj­ustu skoð­ana­könn­unum vera óásætt­an­legt. „Fylgið er langt undir vænt­ingum,“ segir Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, for­maður VG og ráð­herra. Jódís Skúla­dóttir, vara­for­maður þing­flokks VG, seg­ist hafa trú á því að með breyttri for­ystu og sterk­ari áherslu á grunn­stoðir hreyf­ing­ar­innar muni þeim ná að vinna fylgið upp.

Lands­fundur VG hefst á morgun, föstu­dag, og lýkur á sunnu­dag. Á laug­ar­dag fer fram stjórn­ar­kjör en Svandís Svav­ars­dóttir er ein í fram­boði til for­manns. Jódís og Guð­mundur Ingi gefa hins vegar bæði kost á sér til emb­ættis vara­for­manns. 

Fyrir fund­inum liggur til­laga um að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu og boða til kosn­inga. Hvorugt þeirra tekur afstöðu til þess hvort þau styðji þá hug­mynd að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu áður en kjör­tíma­bil­inu lýkur.  Jódís telur þó ekki lík­legt að þau klári kjör­tíma­bilið „ hvort sem verður kosið í vor eða fyrr. Umræða um stjórn­ar­sam­starfið og fram­tíð þess mun eiga sér stað á lands­fundi. Lýð­ræð­is­leg nið­ur­staða fund­ar­ins er réttur far­vegur fyrir allar álykt­anir sem félagar leggja fram,“ segir hún. Guð­mundur Ingi seg­ist fara inn á lands­fund­inn og hlusta á sjón­ar­mið félaga sinna um stöðu hreyf­ing­ar­innar, um rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og um stjórn­ar­slit. „Sjálfur er ég í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu af heilum hug,“ segir hann. 

Þegar kemur að þeim málum sem þeim finnst VG þurfa að leggja áherslu á fram að næstu kosn­ingum segir Guð­mundur Ingi mik­il­vægt að hreyf­ingin leiti aftur í ræt­urnar og skerpi vinstri áherslur sínar. „Við þurfum að fá fleiri til liðs við okkur og fá fleiri og sterk­ari raddir til að vinna að frek­ari jöfn­uði fyrir fatlað fólk, inn­flytj­endur, lág­launa­fólk og barna­fjöl­skyldur. Við þurfum að tala fyrir rétt­indum hinsegin fólks og fyrir nátt­úr­unni,“ segir hann. Jódís er sam­mála því að hreyf­ingin þurfi að fær­ast nær kjarna­stefn­unni. „Það er mikið pláss fyrir rótækan vinstri grænan flokk í lit­rófi íslenskra stjórn­mála. Flestar stjórn­mála­hreyf­ingar virð­ast vera að fær­ast veru­lega til hægri með auk­inni útlend­inga andúð, áherslum á einka­væð­ingu og frek­lega nýt­ingu auð­linda. Lands­fundur leggur línur um áherslur í næstu kostn­inga­bar­áttu,“ segir hún.

Spurn­ingar Heim­ild­ar­innar til vara­for­manns­efna VG ásamt svörum þeirra:

Af hverju ákvaðst þú að gefa kost á þér í embætti varaformanns VG?

Guðmundur Ingi: 

„Ég hef verið vara­for­maður VG frá 2019, fyrir utan síð­ustu mán­uði, svo ég þekki starfið vel. Ég brenn fyrir umhverfis- og nátt­úru­vernd, mann­rétt­indum og félags­legum áherslum og vil halda áfram að vinna þeim braut­ar­gengi í íslensku sam­fé­lagi. 

Vara­for­maður þarf sömu­leiðis alltaf að vera til­bú­inn til að stíga upp í emb­ætti for­manns og ég hef sýnt að það get ég gert.  

Ég er stoltur af mörgu sem VG hefur áorkað undir minni for­ystu í hreyf­ing­unni, sér­stak­lega fjöl­mörgum mik­il­vægum þing­málum sem við kláruðum í vor, eins og breyt­ingum á örorku­líf­eyr­is­kerf­inu, Mann­rétt­inda­stofnun og fjöl­mörgum kjara­samn­ings­tengdum málum sem auka jöfnuð og rétt­læti í sam­fé­lag­inu.“

Jódís:

„Ég hef trú á því að styrk­leikar mínir, reynsla og skýr sýn á stefnu hreyf­ing­ar­innar geti gagn­ast vinstri grænum á þessun tíma­punkti. Við verðum að horfast í augu við stöð­una og þora að gera breyt­ingar með hag heild­ar­innar í huga. Ég hef reynslu af því að leiða fram­boð okkar á sveit­ar­stjórn­ar­stigi til sig­urs og við­halda trausti og sam­stöðu félag­anna á öfl­ugri stefnu VG. Hreyf­ingin þarf sterka for­ystu sem setur lýð­ræði á odd­inn og treystir gras­rót­inni til að vera kompásinn sem vísar veg­inn.“

Hvert yrði þitt fyrsta verk ef þú yrðir nýr varaformaður VG?

Jódís:

„Ég myndi fyrst af öllu leggja áherslu á að efla innra starf hreyf­ing­ar­innar og virkja gras­rót­ina þannig að rödd hinna almennu félaga hafi meiri vigt en verið hefur. Mér er sér­stak­lega umhugað um að efla ung­liða­hreyf­ing­una og okkar kjörnu full­trúa á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu með nán­ara sam­tali og sam­ráði.“

Guðmundur Ingi:

„Ég myndi ásamt nýjum for­manni og nýrri stjórn VG fara á fullt í að skipu­leggja og und­ir­búa kosn­inga­vet­ur­inn. Það þarf að funda með svæð­is­fé­lögum og kjör­dæm­is­ráðum vegna kosn­inga, og svo stytt­ist í næsta flokks­ráðs­fund í febr­úar sem þarf að skipu­leggja vel. 

Í félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­inu vinnum við nú að fyrstu stefnu í mál­efnum inn­flytj­enda á Íslandi og nýjum heild­ar­lögum um mál­efni inn­flytj­enda. Vinnumansals­mál hafa líka verið ofar­lega á for­gangs­list­anum og vinna að þeim málum mun halda áfram. Ég mun einnig taka vel utan um jafn­réttis- og mann­rétt­inda­mál sem nýlega bætt­ust við ráðu­neyti mitt.“

Er fylgi hreyfingarinnar samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum ásættanlegt?

Guðmundur Ingi:

„Að sjálf­sögðu ekki, fylgið er langt undir vænt­ingum. Við þurfum að leita aftur í ræt­urnar, skerpa félags­legar áherslur, áherslur á nátt­úru­vernd og kven­frelsi og ná að minna fólk á það fyrir hvað VG stendur og hverju við höfum áorkað. Það mun skipta miklu máli að ná tökum á verð­bólg­unni svo vaxta­stig geti farið niður. Og það er akkúrat að ger­ast, verð­bólga er að hjaðna og vaxta­lækkun er hafin hjá Seðla­bank­anum.“

Jódís:

„Nei, VG er eini raun­veru­legi val­kost­ur­inn fyrir öfl­ugt vinstra fólk. Í VG eiga umhverf­is­málin, frið­ar­stefnan, kven­frelsið og félags­lega rétt­lætið lög­heim­ili og með því að byggja upp traust á okkar góðu vinstri stefnu fáum við okkar fólk til baka. Ég hef trú á því að með breyttri for­ystu og sterk­ari áherslu á grunn­stoðir okkar munum við vinna fylgið okkur upp.“

Hvaða mál þarf VG að setja á oddinn fram að næstu kosningum?

Jódís:

„Við verðum að fær­ast nær kjarna stefu okkar. Það er mikið pláss fyrir rótækan vinstri grænan flokk í lit­rófi íslenskra stjórn­mála. Flestar stjórn­mála­hreyf­ingar virð­ast vera að fær­ast veru­lega til hægri með auk­inni útlend­inga andúð, áherslum á einka­væð­ingu og frek­lega nýt­ingu auð­linda. Lands­fundur leggur línur um áherslur í næstu kostn­inga­bar­áttu.“

Guðmundur Ingi:

„Ég hef sagt að ég vilji að VG leiti aftur í ræt­urnar og skerpi vinstri áherslur sínar, skerpi áhersl­urnar á umhverfis- og nátt­úru­vernd og mann­rétt­indi. Við þurfum að fá fleiri til liðs við okkur og fá fleiri og sterk­ari raddir til að vinna að frek­ari jöfn­uði fyrir fatlað fólk, inn­flytj­endur, lág­launa­fólk og barna­fjöl­skyldur. Við þurfum að tala fyrir rétt­indum hinsegin fólks og fyrir nátt­úr­unni. Kerf­is­breyt­ingar skipta miklu máli og taka tíma, eins og breyt­ing­arnar sem við náðum í gegn á örorku­líf­eyr­is­kerf­inu, barna­bóta­kerf­inu og hús­næð­is­stuðn­ings­kerf­inu. Við þurfum að halda áfram með þessar umbætur fram að næstu kosn­ingum og áfram inn í fram­tíð­ina.“

Hvers konar vinnubrögð þarf VG að leggja áherslu á fram að næstu kosningum?

Guðmundur Ingi:

„Við verðum að hleypa glæðum í félags­starfið í hreyf­ing­unni okkar. Við í þing­flokki og ráð­herra­liði þurfum að leggja okkur enn betur fram við að hlusta á gras­rót­ina, hitt­ast oftar, funda um land allt og fá fram sem flestar raddir. Ég vil að næsta stjórn hreyf­ing­ar­innar fái svæð­is­fé­lög VG í lið með sér til að fjölga óform­legum sam­veru­stundum í starf­inu utan reglu­legra funda og taka sér­stak­lega á móti nýjum félögum.“

Jódís:

„VG þarf að horfast í auga við það sem ekki hefur gengið upp í þessu stjórn­ar­sam­starfi og af hverju svo fá hyggj­ast kjósa hreyf­ing­una. Við verðum að vera heið­ar­leg og skoða hvernig við getum unnið til baka það traust sem hefur tap­ast í þessu stjórn­ar­sam­starfi. Ég legg alltaf áherslu á heið­ar­leg og lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð með aherslu á okkar stefnu.“

Á VG að stefna á að komast aftur í ríkisstjórnarsamstarf eftir kosningar eða væri ásættanlegt að vera í minnihluta?

Jódís:

„VG á alltaf erindi í rík­is­stjórn með stefnu sína fyrir heil­brigð­ara sam­fé­lagi að leið­ar­ljósi. VG kann samt öðrum fremur að veita þétta, skyn­sam­lega og öfl­uga stjórn­ar­and­stöðu. Það er ekki tíma­bært að mínu mati að huga að stjórn­ar­myndun fyrir kosn­ingar en VG á ekki erindi í sam­starf með flokkum sem eru í beinni and­stöðu við stefnu okkar og gildi.“

Guðmundur Ingi:

„Stjórn­málin snú­ast um að koma sjón­ar­miðum á fram­færi og hafa áhrif á stjórn lands­ins og þróun sam­fé­lags­ins. Það er líka hægt að gera í stjórn­ar­and­stöðu. Að mínu mati þarf Ísland sterka félags­hyggju­stjórn á næsta kjör­tíma­bili. Ef við fáum til þess stuðn­ing í kosn­ingum og það tekst að mynda slíka rík­is­stjórn utan um mál­efni sem við setjum á odd­inn, þá er ég svo sann­ar­lega til í það. Ef ekki þá tek ég glaður sæti í stjórn­ar­and­stöðu og veiti nýrri rík­is­stjórn aðhald ásamt félögum mínum, fái ég umboð félaga minna í VG og kjós­enda til að sitja á Alþingi.“

Í upphafi samstarfsins var varað við því að enginn vinstriflokkur gæti komið vel frá samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Lítur þú svo á að slíkar aðvaranir hafi verið réttmætar?

Guðmundur Ingi:

„Sagan mun dæma um það. Stjórn­mál eru list hins mögu­lega og í þessu sam­starfi höfum við náð miklum árangri, svo sem með þriggja þrepa skatt­kerfi, lengra fæð­ing­ar­or­lofi, hækk­uðum barna- og hús­næð­is­bótum, kyn­rænu sjálf­ræði, ein­föld­uðu og rétt­lát­ara örorku­líf­eyr­is­kerfi, nýrri þung­un­ar­rofslög­gjöf, minni greiðslu­þátt­töku sjúk­linga, fjölda frið­lýs­inga, aðgerðum í lofts­lags­málum, og svo mætti lengi telja. Hinir stjórn­ar­flokk­arnir myndu líka tapa miklu fylgi ef nið­ur­staða kosn­inga yrði eins og skoð­ana­kann­anir sýna núna, ekki bara VG . Ég minni einnig á að þó svo að á milli kosn­ing­anna 2017 og 2021 höfum við vissu­lega tapað fylgi, þá var árangur VG samt góður í sögu­legu sam­hengi í síð­ari kosn­ing­unum. Ég er viss um að við munum upp­skera meira í næstu kosn­ingum en kann­anir gefa til kynna.“

Jódís:

„Já þær eru rétt­mætar, ég geri á engan hátt lítið úr þeim góðu og mik­il­vægu málum sem við höfum klárað á þessu kjör­tíma­bili né hversu margt við höfum ýmist lagað eða stoppað frá öðrum flokkum. Ég er þó hugsi um hversu dýru verði mála­miðl­anir hafa verið keyptar.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þau gleyma alveg Sósíalistaflokknum❗️
    0
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Leggja þennan flokk niður!!!
    0
  • jon petur kristjansson skrifaði
    Svo dugleg í að stoppa af Virkjanir að Olíunotkun fiskimjölsverksmiðja er langt fram úr hófi að þetta er mesti mengunarflokkur landsins og þar að auki eru Hvalveiðar alltaf stoppaðar af (80 Hvalir af Hundrað þúsund) og VG ber persónulega ábyrgð á fækkun ferðamanna til Íslands vegna Hvala kjaftæði VG og þetta fólk eins og Sjálfstækisflokkurinn og Framsókn hafa ekkert gert nema skapa verðbólgu lækka auðlindagjöld og allt sem þessi Ríkisstjórn gerir og hefur gert kostar þjóðina bara meiri pening og alltaf með sama markmiðið sem er að ná Bönkunum af framtíðarkynslóðum þessa lands og hvenær keyptu útgerðarmenn kvóta af íslensku þjóðinni til eignar ?? Hvar eru viðlagasjóðshúsin og leiguþök og gjaldeyrisskömmtun eða það að tengja krónuna við Evru eða Dollar !! það er ekkert gert ! strangara eftirlit með fiskeldi hvar er það ? og af hverju er ekkert rafmagn búið til með sjávarföllunum ? og allt rusl brennt eða endurunnið á íslandi ? við borgum milljarða til að flytja út rusl og svo er Heilbrigðiskerfið svelt og allt rafmagn í ólagi o.s.frv Fáið ykkur aðra vinnu ! og takið Peningastefnunefnd með ykkur !
    3
  • SGIG
    Sigurlaug Guðrún I Gísladóttir skrifaði
    Vona innilega að Jódís hafi sigurinn í þessum kosningum ;) Hvernig Guðmundur hefur haldið á málaflokknum um málefni fatlaðra er til skammar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár