Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Tugir fyrirtækja töldu rangt fram til að fá hærri styrki í „draumalandi nýsköpunarmanna“
Greining

Tugir fyr­ir­tækja töldu rangt fram til að fá hærri styrki í „drauma­landi nýsköp­un­ar­manna“

Efnahags- og fram­fara­stofn­unin, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn og Skatt­ur­inn hafa öll bent á að eft­ir­liti með útgreiðslu nýsköp­un­ar­styrkja úr rík­is­sjóði, sem voru 1,3 millj­arðar króna fyrir nokkrum árum en verða 24 millj­arðar króna árið 2029, væri veru­lega ábóta­vant. Skatt­ur­inn hefur þegar sparað rík­is­sjóði 210 millj­ónir króna með því að gera gjalda­breyt­ingar hjá 27 aðilum sem töldu fram annan kostnað en nýsköpun til að fá styrki úr rík­is­sjóði. Einn starfs­maður sinnir eft­ir­liti með mála­flokknum.
Regnvotur Sunak vonar að hlutirnir geti einungis skánað
Greining

Regn­votur Sunak vonar að hlut­irnir geti ein­ungis skánað

Enginn sér fram á annað en mik­inn ósigur Íhalds­flokks­ins í Bret­landi, þar með tal­inn Rishi Sunak, for­sæt­is­ráð­herra flokks­ins. Sunak boð­aði samt snemm­búnar kosn­ingar á dög­unum og verða þær haldnar í byrjun júlí. Mikil óánægja með dýr­tíð­ar­krísu, kreppu­á­stand og óreiðu­kenndan Íhalds­flokk virð­ist ætla að skila Verka­manna­flokknum fyrstu rík­is­stjórn sinni síðan frá ósigri Gordons Brown árið 2010.
Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins
GreiningForsetakosningar 2024

Halla Tóm­as­dóttir verður sjö­undi for­seti lýð­veld­is­ins

Kjarna­fylgi tveggja efstu fram­bjóð­enda til for­seta var hnífjafnt dag­inn fyrir kosn­ingar. Fjöldi kjós­enda valdi að velja á milli þeirra á kjör­dag og lang­flestir þeirra völdu Höllu Tóm­as­dóttur, sem vann afger­andi sigur. Þrjár konur fengu þrjú af hverjum fjórum atkvæðum, kjós­endur Jóns Gnarr kusu „með hjart­anu“ og fjöldi fram­bjóð­enda fékk mun færri atkvæði en með­mæli með fram­boði sínu.
Tvær konur hnífjafnar í einum mest spennandi kosningum lýðveldissögunnar
GreiningForsetakosningar 2024

Tvær konur hnífjafnar í einum mest spenn­andi kosn­ingum lýð­veld­is­sög­unnar

Loka­kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar sýnir að það eru yfir­gnæf­andi líkur á því að annað hvort Halla Tóm­as­dóttir eða Katrín Jak­obs­dóttir verði næsti for­seti Íslands. Hálf milljón sýnd­ar­kosn­ingar sýna að vart er hægt að greina mun á líkum þeirra á sigri. Leita verður aftur til árs­ins 1980 til að finna jafn tví­sýnar kosn­ingar.
Halla Tómasdóttir hefur bætt við sig því fylgi sem Halla Hrund hefur misst
GreiningForsetakosningar 2024

Halla Tóm­as­dóttir hefur bætt við sig því fylgi sem Halla Hrund hefur misst

Líkurnar á því að Katrín Jak­obs­dóttir setj­ist við borð­send­ann sem for­seti á rík­is­ráðs­fund­unum sem hún hefur setið síð­asta sex og hálfa árið sem for­sæt­is­ráð­herra hafa auk­ist og mæl­ast nú 49 pró­sent. Þrír fram­bjóð­endur er hnífjafnir í bar­átt­unni um að verða val­kost­ur­inn við hana á kjör­dag.
Alvotech tapaði 332 milljónum krónum á dag á fyrsta ársfjórðungi
GreiningRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tap­aði 332 millj­ónum krónum á dag á fyrsta árs­fjórð­ungi

Fjöl­margir fjár­festar, meðal ann­ars íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, hafa veðjað stórt á að Alvotech muni með tíð og tíma verða mylj­andi pen­inga­vél. Hökt hefur verið á því ferli og á síð­ustu 27 mán­uðum hefur félagið tapað um 180 millj­örðum króna. Stjórn­endur Alvotech eru hins vegar brattir og spá því að tekjur félags­ins muni allt að fimm­fald­ast milli ára.
Popúlísk aðferð til að ná eyrum óöruggra karla
Greining

Popúlísk aðferð til að ná eyrum óör­uggra karla

Popúlistar karl­mennsk­unnar njóta sívax­andi vin­sælda. Í spjalli Skoð­ana­bræðra við Patrik Atlason virt­ist ljóst að konur eigi að til­heyra hlut­verki hefð­bund­innar hús­móður á meðan að karl­inn sér fyrir tekjum heim­il­is­ins. Ungir karl­menn eru stöðugt áreittir af algóryþmum sam­fé­lags­miðla með predik­urum goð­sagna­kenndrar karl­mennsku, enda­lausu klámi og óraun­hæfum mark­miðum sem grafa undan sjálfs­vit­und þeirra.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
Greining

Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafn­ar­firði nálg­ast tvær millj­ónir króna

Mikið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þegar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­aður með skatt­tekjum er staðan skást í Kópavogi og Reykja­vík en versnar hrað­ast í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi, þar sem veltufé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörður er eina sveit­ar­fé­lagið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, umfram það sem æski­legt er. Heim­ildin rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Menning mótmæla í Bandaríkjunum gleymd og grafin
GreiningÁrásir á Gaza

Menning mót­mæla í Banda­ríkj­unum gleymd og grafin

Nútíma­saga Banda­ríkj­anna er mótuð af kröft­ugum mót­mæla­hreyf­ingum. Mótmæli gegn Víetnam­stríð­inu og fyrir rétt­inda­bar­áttu þeldökkra og ann­arra minni­hluta­hópa höfðu áhrif á stjórn­mála­vit­und heilla kyn­slóða. Mótmæli háskóla­nema þessa dag­ana gegn fjár­hags­legum tengslum háskóla sinna við Ísrael og gegn stríð­inu á Gaza mæta þó harka­legri vald­beit­ingu yfir­valda. Sögulegi bak­sýn­is­speg­ill­inn dæmir slíkar aðgerðir hart.
Skærustu stjörnur rappsins heyja vægðarlaust upplýsingastríð
Greining

Skærustu stjörnur rapps­ins heyja vægð­ar­laust upp­lýs­inga­stríð

Rapp­ar­arnir Kendrick Lamar og Drake kepp­ast nú við að gefa út hvert lagið á fætur öðru þar sem þeir bera hvorn annan þungum sökum. Kendrick Lamar sakar Drake um barn­a­níð og Drake segir Kendrick hafa beitt sína nán­ustu ofbeldi fyrir luktum dyrum. Á und­an­förnum mán­uðum hafa menn­irnir gefið út níu lög um hvorn annan og virð­ast átök­unum hvergi nærri lokið. Rapp­spek­úlant­inn Bergþór Másson segir stríðið afar athygl­is­vert.

Mest lesið undanfarið ár