Alþjóðlegt fyrir alþýðuna
Mynd dagsins

Alþjóð­legt fyrir alþýð­una

Pálína Jóns­dóttir (mynd) leik­stjóri og skáldið Ewa Marcinek, stofn­uðu saman Alþjóð­lega leik­fé­lagið Reykja­vík Ensemble, árið 2019. Á síð­asta leik­ári sýndi leik­fé­lagið þrjú verk sem um 60 lista­menn komu að. Tveir þriðju þeirra voru af erlendum upp­runa - sann­ar­lega alþjóð­legt leik­hús. Pálína segir að það velti allt á því hvenær okkur tak­ist að koma böndum á Covid, hvern­ing eða hvort þetta leikár kom­ist á eitt­hvert flug. Leik­fé­lagið var valið List­hópur Reykja­víkur 2020.
Óþekki embættismaðurinn er eina pólitíska fórnarlamb fyrstu Covid-jólanna
Fréttir

Óþekki emb­ætt­is­mað­ur­inn er eina póli­tíska fórn­ar­lamb fyrstu Covid-jól­anna

Einir sex stjórn­mála- og emb­ætt­is­menn á Íslandi og í Svíþjóð voru gagn­rýndir fyrir hátt­erni sitt og brot á reglum og til­mælum vegna Covid-19 yfir jólin. Einungis einn þeirra, emb­ætt­is­mað­ur­inn Dan Eliasson, end­aði á því að segja af sér og létti þar með þrýst­ingnum af ráð­herrum í sænsku rík­is­stjórn­inni sem höfðu brotið gegn sótt­varn­ar­til­mælum.
Samverkamenn Samherja hætta eftir áralöng störf
FréttirSamherjaskjölin

Sam­verka­menn Samherja hætta eftir ára­löng störf

Fram­kvæmda­stjóri þýsks dótt­ur­fé­lags Samherja, Haraldur Grét­ars­son, hefur ákveðið að hætta, en segir ákvörð­un­ina ekki tengj­ast rann­sóknum á Samherja á Íslandi, Noregi og í Namibíu. Baldvin Þor­steins­son tekur við starfi hans. Einn af stjórn­ar­mönnum Samherja, Sigrún Björk Jak­obs­dóttir, er einnig hætt í stjórn Samherja eftir að hafa verið í stjórn­inni frá árinu 2013.
Sendiráðið í morgunsárið
Mynd dagsins

Sendi­ráðið í morg­unsárið

Það var þyngra en tárum taki að horfa á skríl, hvöttum áfram af Trump, her­taka þing­hús Banda­ríkj­anna í gærkveldi og nótt. Hins­vegar gladdi það í morg­unsárið að sjá að Biden og Harris voru stað­fest af þing­inu, sem rétt­kjör­inn for­seti og vara­for­seti þjóð­ar­innar. Enda var flaggað fyrir utan nýtt sendi­ráð Banda­ríkj­anna við Engja­teig­inn nú í morgun. Nú eru aðeins 13 dagar þangað til Trump lætur af emb­ætti, guði sé lof.

Mest lesið undanfarið ár