Bóndi fyrir Bóndadaginn
Mynd dagsins

Bóndi fyrir Bónda­dag­inn

Á fjár- og kúa­bú­inu Butru búa bænd­urnir Ágúst Jensson og Oddný Steina Vals­dóttir (mynd). „Það sem er brýn­ast nú fyrir bændur er að hér sé hægt að stunda land­búnað og hafa ein­hverjar tekjur af. Raun­tekjur sauð­fjár­bænda hafa rýrnað um tugi pró­senta á und­an­förnum árum. Það er líka mik­il­vægt að gera okkar góðu afurðir betur rekj­an­legar,“ segir Oddný Steina, sem situr í stjórn Bænda­sam­tak­anna. Nú á föstu­dag­inn er Bónda­dag­ur­inn. Til ham­ingju allir bændur, líka allir þeir sem eru á möl­inni.
Namibíski lögmaðurinn í Samherjamálinu: Tilraun „til að ráða mig af dögum“
FréttirSamherjamálið

Namibíski lög­mað­ur­inn í Sam­herj­a­mál­inu: Tilraun „til að ráða mig af dögum“

Namibíski lög­mað­ur­inn Marén de Klerk býr að sögn yfir upp­lýs­ingum sem sýna að for­seti Namibíu hafi skipu­lagt greiðslur frá fyr­ir­tækjum eins og Samherja til Swapo-flokks­ins til að flokk­ur­inn gæti haldið völdum. Hann segir að líf sitt sé í rúst vegna mis­taka og að hann vilji hjálpa til við rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins.
Tveir plús tveir eru fimm
Mynd dagsins

Tveir plús tveir eru fimm

Í svona árferði leggj­ast auð­vitað nokkrar Lunda­búðir á Lauga­veg­inum á hlið­ina, en það kemur líka auð­vitað eitt­hvað annað í stað­inn - eins á og Lauga­vegi 48. Á föstu­dag­inn opn­aði þar nýtt gall­erí, MUTT Gallery, með stór­góðri sýn­ingu Úlfs Karls­sonar (mynd) sem ber heitið: 2+2 = 5. Mið­bær­inn okkar er alltaf að breyt­ast, er bestur þegar þar verður til áhuga­verð blanda af menn­ingu, veit­inga­stöðum og fjöl­breyttum versl­unum sem gerir mið­bæ­inn bæði lif­andi og áhuga­verðan fyrir gesti og gang­andi.
Fuglar, jólatré, gamalt skrifborð, plast og síðan olía
Mynd dagsins

Fuglar, jóla­tré, gam­alt skrif­borð, plast og síðan olía

Á Álfsnesi voru urðuð hvorki meira né minna en 103 þús­und tonn af sorpi á síð­asta ári, að sögn Arnórs Gunn­ars­sonar hjá Sorpu. Innan um stór­virkar vinnu­vélar voru hund­ruð fugla að finna sér æti í morgun, áður en mokað var yfir úrgang­inn. Næsta stóra verk­efni Sorpu er að hefja þró­un­ar­starf með PVD ehf. og í sam­ein­ingu ætla fyr­ir­tækin að vinna olíu úr öllu því plasti sem berst í flokk­un­ar­stöð fyr­ir­tæk­is­ins í Gufunesi. „Það að nýta plast í olíu­fram­leiðslu ger­ir Sorpu kleift að end­ur­nýta allt það plast sem áður hefur farið í brennslu er­lend­is."
Namibískur lögmaður segir forsetann aðalmanninn í Samherjamálinu
ErlentSamherjaskjölin

Namibískur lög­maður segir for­set­ann aðal­mann­inn í Sam­herj­a­mál­inu

Namibíski lög­mað­ur­inn Maren de Klerk segir að for­seti Namibíu Hage Geingob hafi verið aðal­mað­ur­inn í spill­ing­ar­mál­inu sem kallað er Sam­herj­a­málið á íslensku. Ef de Klerk segir rétt frá er málið, sem hófst með því að sagt var frá mútu­greiðslum Samherja í land­inu, dýpra og stærra en áður hefur verið talið og snýst meðal ann­ars um æðsta ráða­mann þjóð­ar­innar.
Tíræður Blíðfari
Mynd dagsins

Tíræður Blíðfari

„Hann var á grá­sleppu í fyrra­vor, en þá fór skrúfan af, orðin gegn­ryðguð. Enda er hann Blíðfari kom­inn á tíræð­is­aldur,“ sagði Hlöðver Krist­ins­son þar sem hann var að huga að bátnum niður við höfn­ina á Vogum á Vatns­leysu­strönd fyrr í dag. Nái frum­varp Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra fram, sem var lagt fram á Alþingi nú um dag­inn, verður mikil breyt­ing á veið­unum. Í stað veiði­daga, eins og verið hefur mörg und­an­farin ár, verður útgef­inn kvóti á grund­velli veiða und­an­far­inna ára. Grá­sleppu­ver­tíðin hefst venju­lega upp úr miðjum mars.

Mest lesið undanfarið ár