Bragi beitti sér gegn því að ráðuneytið kannaði ábendingar um ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Bragi beitti sér gegn því að ráðu­neytið kann­aði ábend­ingar um ofbeldi

Fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, Bragi Guð­brands­son, hvatti félags­mála­ráð­herra til að gera sem minnst úr ásök­unum á hendur for­stöðu­manni með­ferð­ar­heim­il­is­ins Lauga­lands, Ingjaldi Arn­þór­syni, við fjöl­miðla. Þá lagð­ist hann einnig gegn því að félags­mála­ráðu­neytið afl­aði gagna um málið.
Bandaríkin ætla að ganga lengra en Ísland í fjárstuðningi við barnafjölskyldur
Fréttir

Banda­ríkin ætla að ganga lengra en Ísland í fjár­stuðn­ingi við barna­fjöl­skyldur

Banda­ríkin inn­leiða nýtt barna­bóta­kerfi sem veitir mán­að­ar­legan fjár­stuðn­ing upp á allt að 300 doll­ara fyrir hvert barn til hjóna með undir 20 millj­ónir í árs­tekjur. Þetta kerfi er miklu „sós­íal­ískara“ en íslenska barna­bóta­kerfið sem gagn­ast nær ein­göngu þeim allra fátæk­ustu í sam­fé­lag­inu. Kolbeinn Stef­áns­son félags­fræð­ingur segir að Banda­ríkin taki með þessu skrefi fram úr Íslandi og að kerfið lík­ist barna­bóta­kerfum Norð­ur­landa.
Vetur konungur heimsækir Atlagerðisvitann
Mynd dagsins

Vetur kon­ungur heim­sækir Atla­gerð­is­vit­ann

Það eru 105 vitar á land­inu. Einn sá elsti, Atla­gerð­is­vit­inn, var byggður árið 1918 og stendur á Tanga á Vatns­leysu­strönd, við Stóralón og Litlalón. Í hásuður blasir Fagra­dals­fjall við í tæp­lega tíu km fjar­lægð, og í norður Snæ­fells­nesið á góðum degi. En ekki í dag, það var ansi nap­urt á Reykja­nes­inu í morgun, hvöss norð­an­átt og gekk á með smá éljum, á meðan jörð hríðskalf undir Fagra­dals­fjall­inu.
Samtaka formaður
Mynd dagsins

Samtaka for­maður

Þorbjörg Þor­valds­dóttir (mynd) var um helg­ina kjörin í þriðja sinn for­maður Sam­tak­anna '78. „Það náð­ist stór áfangi í bar­áttu hinsegin fólks í lok síð­asta árs með laga­setn­ingu um kyn­rænt sjálf­ræði frá Alþingi. Næsti áfangi er að huga betur á rétt­indum hinsegin flótta­fólks sem hingað kemur. Í dag eru þau lítil sem engin.“ Heimili Sam­tak­anna, Regn­boga­sal­ur­inn, félags­heim­ilið er að Suð­ur­götu 3.
Baráttudagurinn áttundi mars
Mynd dagsins

Bar­áttu­dag­ur­inn átt­undi mars

Alþjóð­legi bar­áttu­dagur kvenna hefur verið hald­inn hátíð­legur þann átt­unda mars í meira en heila öld. Upp­haf­lega sneru kröfur kvenna að kosn­inga­rétti og sam­stöðu verka­kvenna en í dag hefur hvert ár sitt þema. Í ár er þemað „Choose To Challenge“, sem vekur máls á kynja­hlut­drægni og kyn­bundnu ójafn­rétti en er jafn­framt hannað til að fagna vinnu og afrekum kvenna - líkt og Karolinu Polak (mynd). Karolina er pólsk verka­kona sem hefur búið og starfað hér í tíu ár, unnið sig upp, og er nýlega orðin aðstoð­ar­versl­un­ar­stjóri í stórri mat­vöru­verslun vestur í bæ.
„Ég upplifði alla málsmeðferðina eins og ég væri fangi refsivörslukerfisins“
Fréttir

„Ég upp­lifði alla máls­með­ferð­ina eins og ég væri fangi refsi­vörslu­kerf­is­ins“

María Árna­dótt­ir er ein níu kvenna sem kær­a ís­lenska rík­ið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu fyr­ir brot á rétti til rétt­látr­ar máls­með­ferð­ar í málum er varða kyn­bundið ofbeldi. Í máli hennar lá fyr­ir játn­ing en vegna seina­gangs lög­reglu var hluti þess fyrndur og restin felld nið­ur án rök­stuðn­ings. Við yf­ir­ferð lög­manns á nið­ur­felld­um mál­um komu í ljós marg­vís­leg­ar brota­lam­ir við rann­sókn og máls­með­ferð.
Haninn Hreggviður IV við Dillonshús, musteri ástarinnar
Mynd dagsins

Haninn Hregg­viður IV við Dillons­hús, must­eri ást­ar­innar

Fimm máls­met­andi ein­stak­lingar rit­uðu í morgun langa grein í Frétta­blaðið um að flytja Dillons­hús, sem stað­sett er á Árbæj­ar­safni aftur heim. „Heim“ er hornið á Suð­ur­götu og Túngötu, en þar er nú smekk­laust bíla­stæði. Húsið byggði Dillon lávarður, Sire Ottesen ást­konu sinni og barni þeirra, árið 1853. Húsið stóð þar þangað til það var flutt upp á Árbæj­ar­safn árið 1961. Húsið hýsir kaffi­hús safns­ins og er helsta mat­ar­hola han­ans Hregg­viðs IV. Hann er lík­lega einn af fáum sem er mót­fall­inn flutn­ingum á þessu fína húsi niður í Kvos.

Mest lesið undanfarið ár