Einn ríkasti maður Noregs hefur samstarf í laxeldi við eiganda Arnarlax
FréttirLaxeldi

Einn rík­asti maður Noregs hefur sam­starf í lax­eldi við eig­anda Arnarlax

Kjell Inge Røkke, einn rík­asti maður Noregs sem einkum hefur efn­ast á olíu­vinnslu, hefur tekið upp sam­starf við lax­eld­is­ris­ann Salmar, eig­anda Arnarlax á Bíldudal. Á meðan bíður Salmar eftir því hvort félagið fær að kaupa eig­anda Arctic Fish á Ísafirði og verða nær einrátt í íslensku lax­eldi. Røkke og Salmar ætla að veðja saman á aflandseldi á laxi en hér á landi stundar Arnarlax sjó­kvía­eldi í fjörðum Vest­fjarða.
Enginn af þeim 185 kvótaflóttamönnum sem ríkisstjórnin ætlaði sér að taka á móti kominn til landsins
Fréttir

Enginn af þeim 185 kvótaflótta­mönnum sem rík­is­stjórnin ætl­aði sér að taka á móti kom­inn til lands­ins

Rík­is­stjórn Íslands áætl­aði að taka á móti 85 kvótaflótta­mönnum árið 2020 og 100 á þessu ári. Að svo stöddu er eng­inn þeirra kom­inn til lands­ins en sam­kvæmt félags­mála­ráðu­neyt­inu er von á 47 ein­stak­lingum frá Sýrlandi í byrjun sept­em­ber. Covid-19 far­ald­ur­inn hefur veikt stöðu flótta­fólks í heim­inum til muna þar sem mun færri kom­ast í öruggt skjól.
Stefnir í harða baráttu norskra um   eignarhaldið á Arctic Fish á Ísafirði
FréttirLaxeldi

Stefnir í harða bar­áttu norskra um eign­ar­haldið á Arctic Fish á Ísafirði

Tvö norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki berj­ast nú um yfir­ráðin yfir Norway Royal Salmon, móð­ur­fé­lagi Arctic Fish á Ísafirði. Móð­ur­fé­lag Arnarlax á Bíldudal, Salmar, er með pálmann í hönd­unum eftir að stjórn Norway Royal Salmon mælti með þeirra til­boði í dag. Til gæti orðið langstærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki lands­ins með sam­ein­ingu Arnarlax og Arctic Fish.
Fjármálastjóri Samherja í Namibíu vissi ekkert um mútugreiðslurnar
FréttirSamherjaskjölin

Fjár­mála­stjóri Samherja í Namibíu vissi ekk­ert um mútu­greiðsl­urnar

Adéll Pay, fjár­mála­stjóri Samherja í Namibíu á árunum 2016 til 2020, vissi að eigin sögn ekki um mútu­greiðslur félags­ins til ráða­manna í land­inu. Pay gerð­ist upp­ljóstr­ari hjá ákæru­vald­inu í Namibíu í mál­inu, með sams konar hætti og Jóhannes Stef­áns­son'. Fjár­mála­stjóri Samherja á Spáni, Ingvar Júl­í­us­son, segir Pay hafa vitað af greiðsl­unum.

Mest lesið undanfarið ár