Endurvinnslan sökuð um vörusvik og grænþvott
Fréttir

End­ur­vinnslan sökuð um vöru­svik og græn­þvott

End­ur­vinnslan hf. hefur í aug­lýs­ingum und­an­farin ár ítrekað gefið til kynna að gler­flöskur séu end­ur­unnar, jafn­vel þótt fyr­ir­tækið urði allt gler og hafi gert í ára­tugi. Fyr­ir­heit um að hefja slíka end­ur­vinnslu í fyrra stóð­ust ekki, jafn­vel þótt ríkið hafi í rúmt ár inn­heimt sér­stakt gjald fyrir gler. Formaður Neyt­enda­sam­tak­anna sakar End­ur­vinnsl­una um vöru­svik og græn­þvott og Neyt­enda­stofa skoðar hvort aug­lýs­ingar fyr­ir­tæk­is­ins stand­ist lög.
Segja uppsögn Eggerts í kjölfar Vitaliumálsins óútskýrða
Fréttir

Segja upp­sögn Eggerts í kjöl­far Vitali­u­máls­ins óút­skýrða

Eggerti Þór Krist­ó­fers­syni, for­stjóra Festar, var sagt upp störfum, segir Við­skipta­blaðið, þrátt fyrir að almenn­ings­hluta­fé­lagið hafi sent frá sér til­kynn­ingu um annað. Ekki virð­ist vera ein­ing um upp­sögn­ina í hlut­hafa­hópnum. Við­skipta­blaðið setur upp­sögn Eggerts í sam­hengi við mál Vitaliu Lazarevu, sem vændi tvo stóra hlut­hafa félags­ins um að hafa brotið gegn sér kyn­ferð­is­lega en annar þeirra var einnig stjórn­ar­for­maður þess.
Brynjar hitti utanríkisráðherra Namibíu: Engin framsalsbeiðni enn borist í Samherjamáli
FréttirSamherjaskjölin

Brynjar hitti utan­rík­is­ráð­herra Namibíu: Engin fram­sals­beiðni enn borist í Sam­herj­a­máli

Namibísk yfir­völd hafa lýst yfir vilja til að fá þrjá núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja fram­selda til lands­ins. Namibíski utan­rík­is­ráð­herra hefur rætt málið við þrjá íslenska ráð­herra á fundum. Til­raunir til að fá starfs­menn Samherja fram­selda virð­ast ekki eiga sér stoð í íslenskum lögum og hefur vara­rík­is­sak­sókn­ari sagt að þetta sé alveg skýrt.
Toppar ákæru- og lögregluvalds í Namibíu á Íslandi vegna Samherjamáls
FréttirSamherjaskjölin

Toppar ákæru- og lög­reglu­valds í Namibíu á Íslandi vegna Sam­herj­a­máls

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu og yfir­maður namibísku spill­ing­ar­lög­regl­unnar, hafa verið á Íslandi frá því fyrir helgi og fundað með hér­lendum rann­sak­endum Sam­herj­a­máls­ins. Fyrir viku síðan fund­uðu rann­sak­endur beggja landa sam­eig­in­lega í Haag í Hollandi og skipt­ust á upp­lýs­ingum. Yfirmenn namibísku rann­sókn­ar­innar hafa verið í sendi­nefnd vara­for­set­ans namibíska, sem fundað hefur um fram­sals­mál Sam­herj­a­manna við íslenska ráð­herra.
Utanríkisráðherra Namibíu ræddi framsalsmál við Katrínu forsætisráðherra
FréttirSamherjaskjölin

Utan­rík­is­ráð­herra Namibíu ræddi fram­sals­mál við Katrínu for­sæt­is­ráð­herra

Utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, Netumbo Nandi-Ndaitwah, er stödd hér á landi í tveggja daga heim­sókn. Hún fundar með íslenskum ráð­herrum og heim­sækir fyr­ir­tæki. Aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra, Þórdísar Kol­brúnar Gylf­as­dóttur, segir að namibíski ráð­herr­ann hafi ekki viljað aðkomu íslenskra fjöl­miðla að heim­sókn­inni.
Elísabet drottning er VÍST úr Víðidalnum!
Flækjusagan

Elísabet drottn­ing er VÍST úr Víði­dalnum!

Vart hefur farið fram­hjá neinum að und­an­farna daga hefur verið haldið upp á það í Bret­landi — og jafn­vel víðar — að 70 ár eru síðan Elísabet 2. sett­ist í hásæti sem drottn­ing Bret­lands. („Settist að völdum“ og „valda­af­mæli“ er eig­in­lega vit­laust orða­lag því raun­veru­leg völd hennar eru næstum engin.) Af þessu til­efni var ein­hvers staðar rifjuð upp í glensi...
Lögmannsstofan Logos stofnaði félag Moshenkys sem teygði sig í skattaskjól
FréttirÓlígarkinn okkar

Lög­manns­stofan Logos stofn­aði félag Mos­hen­kys sem teygði sig í skatta­skjól

Lög­fræði­skrif­stof­unni Logos er lýst sem „hjarta aflands­við­skipta“ Íslend­inga. Á tíma­bili kom um helm­ingur af tekjum lög­fræði­skrif­stof­unnar frá skrif­stof­unni í London, sem sá meðal ann­ars um við­skipti fyrir MP Banka og við­skipta­veldi Aleksand­ers Mos­hen­sky, hví­trúss­neska ólíg­ar­kans og kjör­ræð­is­manns Íslands, sem verið hefur stærsti ein­staki kaup­andi upp­sjáv­ar­fisks af íslenskum útgerðum.
Viðskipti Vinnslustöðvarinnar og Moshenskys: „Ég veit bara ekkert um það“
FréttirÓlígarkinn okkar

Við­skipti Vinnslu­stöðv­ar­innar og Mos­hen­skys: „Ég veit bara ekk­ert um það“

Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son segir að einu við­skipti Vinnslu­stöðv­ar­innar í Eyjum við Alex­ander Mos­hen­sky séu með fisk frá Íslandi. Hann hafnar öllum sögu­sögnum um lán­veit­ingar frá Hví­trúss­anum til Vinnslu­stöðv­ar­innar og tengdra félaga og segir að hann njóti engra sér­kjara í við­skipt­unum. Engin vit­neskja hafi legið fyrir um skatta­skjóls­við­skipti félaga Mos­hen­skys.

Mest lesið undanfarið ár