Gæslan getur ekki tryggt öryggi

Skortur á fjár­munum til að manna áhafnir þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar veldur því að öryggi er ekki tryggt og treysta þarf á að flug­menn hlaupi til úr fríum. Stjórn­völd hafa verið upp­lýst um stöð­una árum saman. Björn Brekkan Björns­son, einn reynd­asti flug­stjóri Gæsl­unnar, segir starfs­fólk vera orðið þreytt á því.

Gæslan getur ekki tryggt öryggi
Ekki hægt að stóla á menn í fríum Björn Brekkan Björns­son, einn reynd­asti þyrlu­flug­stjóri Land­helg­is­gæsl­unnar, segir að ekki sé hægt að búa við það að þyrlur Gæsl­unnar séu ekki mann­aðar sem skyldi. Ótækt sé að treysta á að hægt sé að manna vaktir með Mynd: Stundin / Davíð Þór

Ekki er hægt að tryggja að aðstoð þyrlu­flugsveitar Land­helg­is­gæsl­unnar ber­ist sjó­far­endum eða öðrum þeim sem á þurfa að halda hér á landi sökum þess að ekki fæst fjár­magn frá rík­is­vald­inu til að manna þyrlurnar svo vel sé. Treyst er á að flug­menn Gæsl­unnar séu til­búnir að hlaupa til úr vakta­fr­íum og orlofum til að bjarga málum þegar veik­indi eða önnur atvik koma upp. Þá er ekki tryggt að læknir sé alltaf í áhöfn þyrln­anna. Einn reynd­asti flug­stjóri Gæsl­unnar segir að svona sé ekki hægt að halda áfram, ekki sé hægt að stóla á að enda­laust sé hægt að ræsa menn úr fríum.

Ekki hægt að bregðast við bílslysi

Við­bragðs­geta Gæsl­unnar er af þessum sökum tak­mörkuð og dæmi eru um að allar þyrlur hennar séu til­tækar en ekki áhafnir til að manna þær. Í byrjun þessa mán­aðar komu í tvígang upp til­vik af þessu tagi. Fyrst hinn 10. maí …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár