Úkraína frysti eignir Moshensky-fjölskyldunnar
FréttirÓlígarkinn okkar

Úkraína frysti eignir Mos­hen­sky-fjöl­skyld­unnar

Úkraínsk yfir­völd eru sögð hafa kyrr­sett eigur og fryst banka­reikn­inga fyr­ir­tæk­is­ins Santa Kholod í Kænu­garði. Yfirvöld þar telja hví­trúss­nesk fyr­ir­tæki fjár­magna inn­rás Rússa með óbeinum hætti, vegna stuðn­ings ein­ræð­is­stjórnar Lukashenko. Santa Kholod er hluti af fyr­ir­tækja­keðju Aleksand­ers Mos­hen­sky, kjör­ræð­is­manns Íslands, fisk­inn­flytj­anda og ólíg­arka í Hvíta-Rúss­landi. Sagður hafa skráð fyr­ir­tæki á dóttur sína til að verj­ast þving­unum ESB.
Þrjár orrustur og 42 ár sem breyttu stefnu heimsins
Flækjusagan

Þrjár orr­ustur og 42 ár sem breyttu stefnu heims­ins

Um 5.400 kíló­metrar eru í nokkurn veg­inn beinni loft­línu frá Zenta í Mið-Evrópu um smá­þorpið Gulnabad í miðju Íran og til bæj­ar­ins Karnal norður af Delí, höf­uð­borg Indlands. Árin 1697, 1722 og 1739 voru háðar á þessum stöðum orr­ustur þar sem þrjú tyrk­nesk-ættuð stór­veldi áttu í höggi við þrjá ólíka óvina­heri. Eigi að síður eru þessar orr­ustur tengdar á ákveð­inn en óvæntan hátt, að mati Illuga Jök­uls­sonar.
Hefur Taívan alltaf verið hluti Kína?
Flækjusagan

Hefur Taívan alltaf verið hluti Kína?

Heimsókn Nancy Pelosi til Taívans á dög­unum olli gríð­ar­legri gremju Kínverja og hafa Taívanir ekki bitið úr nál­inni með það. Kín­verjar hóta öllu illu, enda hafi heim­sóknin falið í sér ótil­hlýði­lega við­ur­kenn­ingu Banda­ríkja­stjórnar á Taívan sem sjálf­stæðu ríki — en sann­leik­ur­inn sé sá að Taívan sé og hafi alltaf verið hluti Kína. Alveg burt­séð frá póli­tískum spurn­ingum máls­ins: Er það...
Fyrirtækjum fjölgar en tekjur ríkisins lækka
Fréttir

Fyr­ir­tækjum fjölgar en tekjur rík­is­ins lækka

Innan við þriðj­ung­ur fyr­ir­tækja greið­ir tekju­skatt, helm­ing­ur greið­ir ekki laun og litlu færri greiða hvorki trygg­inga­gjald né tekju­skatt. Á sama tíma og hluta­fé­lög­um fjölg­ar skil­a þau minni tekj­um í rík­is­sjóð. Þetta er nið­ur­staða meist­ar­a­rann­sókn­ar Sig­urð­ar Jens­son­ar, sem starf­að hef­ur við skatteft­ir­lit í árarað­ir. Vís­bend­ingar eru um að hluta­fé­laga­formið sé ofnotað, að menn séu að koma fyrir eignum sem alla jafna ættu að vera á þeirra per­sónu­legu skatt­fram­tölum, í því skyni að spara sér skatt­greiðslur.
Creditinfo setur strangari skilyrði um framúrskarandi fyrirtæki
Fréttir

Creditinfo setur strang­ari skil­yrði um fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki

Stærri fyr­ir­tæki sem sæta opin­berum rann­sóknum munu verða fjar­lægð af lista Creditinfo yfir Fram­úr­skar­andi fyr­ir­tæki. Auknar kröfur um umhverfis-, jafn­réttis- og mann­rétt­inda­stefnu auk sam­fé­lags­á­byrgðar eru nú lagðar til grund­vallar. Stór­fyr­ir­tæki sem geng­ist hafa við sam­keppn­is­brotum eða sætt opin­berum rann­sóknum hafa hingað til átt auð­velt með að fá fyr­ir­mynd­ar­stimpil og aðild að sam­tökum sem kenna sig við sam­fé­lags­á­byrgð.
Pöndur bjuggu líka í Evrópu — og átu ekki bara bambus
Flækjusagan

Pöndur bjuggu líka í Evrópu — og átu ekki bara bambus

Panda­björn­inn er eitt fræg­asta dýr heims­ins, sem er svo­lítil þver­sögn því í raun­inni eru þessir birnir sárasjald­gæfir, lifa aðeins á einu mjög afmörk­uðu svæði í Kína og úti í villtri nátt­úr­unni munu aðeins vera til um 1.800 pöndur. Eigi að síður þekkja allir pöndur í sjón og þegar Kín­verjar fást til að senda pöndur í dýra­garða í öðrum löndum, þá...

Mest lesið undanfarið ár