„Óskaplega gott ungt fólk“ berst fyrir lífi sínu eftir bruna

Sólrún Alda og Rahmon berjast fyrir lífi sínu eftir eldsvoða í Hlíðunum. Fjöl­skyldur þeirra beggja standa sem klettar við bak þeirra. Þau vilja brýna fyrir fólki að gæta að heimilum sínum í tengslum við eldhættu.

Erfitt verkefni
Erfitt verk­efni Þau Sólrún Alda og Rahmon fengu erfitt verk­efni í fangið en fólkið þeirra allt stendur þétt að baki þeim. Mynd: Úr einkasafni

Parinu unga sem slasaðist í eldsvoða í Hlíðunum 23. október síðastliðinn er enn haldið sofandi í lífshættu. Ástand þeirra Sólrúnar Öldu Waldorff og Rahmons Anvarovs er alvarlegt, þau berjast bæði fyrir lífi sínu á sjúkra­húsi, hann hér heima á Íslandi en hún úti í Svíþjóð. Bæði eru þau mikið slösuð og tengd við öndunar­vélar. Móðir Sólrúnar segir að þrátt fyrir alvarleika áverkana séu þau bæði sterk og berjist af hörku og það geri aðstand­endur þeirra einnig. „Þau fengu erfitt verkefni í fangið og þurfa á öllu að halda til að takast á við það.“

Þórunn Alda Gylfa­dóttir

„Líðan þeirra beggja er mjög svipuð því þau eru með mjög svipaða áverka. Þau eru bæði með hita, með sýkingar og bæði með lungna­bólgu. Þau eru líka bæði með mikla áverka á lungum, eftir reyk­eitrun og hitann, og með mikil brunasár á stórum hluta húðarinnar. Sólrún hlaut um 35 prósent skaða á húð en fyrsta mat á Rahmon var að hans skaði væri rúmlega 50 prósent,“ segir Þórunn Alda Gylfa­dóttir, móðir Sólrúnar, í samtali við Stundina. Rahmon liggur á gjörgæslu­deild Land­spítala Íslands en Sólrúnu var flogið út til Linköping í Svíþjóð sökum þess að lungu hennar eru verr farin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár