Segir orð dómsmálaráðherra um aðskilnað ríkis og kirkju blekkingu

Nýr samn­ingur ríkis og kirkju gildir í 15 ár hið minnsta og felur í sér 2,7 millj­arða króna greiðslur til þjóð­kirkj­unnar á ári. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur talað fyrir aðskiln­aði, en þing­maður Pírata segir samn­ing­inn festa fyr­ir­komu­lagið í sessi.

Segir orð dómsmálaráðherra um aðskilnað ríkis og kirkju blekkingu
Dóms­mála­ráð­herr­arnir Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir boðar aðskilnað ríkis og kirkju, en for­veri hennar í starfi, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, und­ir­rit­aði samn­ing við þjóð­kirkj­una. Mynd: Pressphotos

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur lýst yfir áhuga á aðskiln­aði ríkis og kirkju og hyggst setja af stað vinnu við und­ir­bún­ing þess á næsta ári. Nýr samn­ingur ríkis og kirkju, sem for­veri hennar í starfi und­ir­rit­aði, tryggir hins vegar greiðslur til þjóð­kirkj­unnar næstu 15 ár hið minnsta. Þing­maður Pírata segir samn­ing­inn festa þjóð­kirkj­una í sessi og sum ákvæði hans and­stæð lögum.

Samkvæmt samn­ingnum, sem þrír ráð­herrar og biskup und­ir­rit­uðu í sept­em­ber, mun íslenska ríkið greiða árlega rúma 2,7 millj­arða króna til þjóð­kirkj­unnar og tekur upp­hæðin breyt­ingum í sam­ræmi við verð­lag og kjara­samn­inga BHM. Samn­ing­ur­inn hefur ekki áhrif á aðrar greiðslur til þjóð­kirkj­unnar sem lög kveða á um og er óháður öðrum tekjum sem þjóð­kirkjan aflar sér.

Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­skoð­aður í að minnsta kosti 15 ár og samn­ings­að­ilar geta ekki kraf­ist breyt­inga á grund­velli fjölg­unar eða fækk­unar með­lima þjóð­kirkj­unnar. „Samn­ingur þessi er ótíma­bund­inn, en samn­ings­að­ilar geta hvor um …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kirkjan

Séra Skírnir krefst réttlætis: Agnes biskup dregin fyrir dóm á fimmtudag
InnlentKirkjan

Séra Skírnir krefst rétt­lætis: Agnes biskup dregin fyrir dóm á fimmtu­dag

Agnes Sig­urð­ar­dóttir biskup verður dregin fyrir dóm á næst­unni vegna meintra brota gegn Skírni Garð­ars­syni sem hrak­inn var úr starfi i tvígang. Skírnir telur brott­rekst­ur­inn vera ólög­mætan. Hann fer fram á háar bætur frá kirkj­unni, ann­ars vegar miska­bætur vegna æru­skaða og mein­gerðar á per­sónu hans upp á 4.5 millj­ónir króna og hins vegar skaða­bætur vegna þess tjóns sem prest­ur­inn telur...

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár