Komu sem flóttamenn en eru sögð of upptekin til að lifa: „Þetta er lífið“

Hjónin Zahra Mesbah Sayed Ali og Hassan Raza Akbari, sem bæði komu til Íslands sem flótta­menn, reka nú túlka­þjón­ustu og veit­inga­stað, auk þess sem hann keyrir leigu­bíl og hún stundar fullt háskóla­nám. Þar að auki eiga þau eina litla dóttur og eiga von á öðru barni. Vinir þeirra hafa áhyggjur af því að þau séu of upp­tekin til að lifa líf­inu. Þau blása á það, taka ólíkum áskor­unum opnum örmum og segja: „Þetta er lífið!“

Komu sem flóttamenn en eru sögð of upptekin til að lifa: „Þetta er lífið“
Hefur aðlag­ast vel Zahra, móðir hennar og systir voru á meðal fyrstu afgönsku kvótaflótta­mann­anna til að koma til Íslands. Það voru við­brigði til að byrja með en í dag eru þær ánægðar og gengur vel. Mynd: Heiða Helgadóttir

Zahra Meshab er á milli verk­efna þegar hún hittir blaða­mann Stund­ar­innar á Háskóla­torgi. Hún er nýkomin úr tíma í háskól­anum og er á leið til þess að verða við­stödd við­tal þar sem hún kemur til með að túlka. Eftir það fer hún og réttir mann­inum sínum, Hassan, hjálp­ar­hönd á veit­inga­staðnum Afghan Style, sem þau reka saman í Graf­ar­vogi. Svona eru dag­arnir jafnan bók­aðir hjá þeim báðum hjón­unum, frá morgni fram á kvöld. Þannig vilja þau líka hafa það, því þau eru sam­stiga í því að grípa þau tæki­færi sem þeim gef­ast í líf­inu. Þau eru bæði brennd að því marki að hafa haft lítil sem engin tæki­færi og njóta þess því mjög þegar þau nú gef­ast. „Fólkið í kringum okkur segir: „Þið eruð allt of upp­tekin til að lifa.“ Þá svörum við: „Við erum að lifa – þetta er lífið!“

Ólíkt upphaf á Íslandi

Þau Zahra og Hassan eru bæði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið sem fékk að vera

Fær loks að starfa sem tannlæknir eftir fimm ára bið
ViðtalFólkið sem fékk að vera

Fær loks að starfa sem tann­læknir eftir fimm ára bið

Nær fimm ár eru frá því að sýr­lenski tann­lækn­ir­inn Lina Ashouri kom til lands­ins ásamt sonum sínum sem flótta­maður. Frá fyrsta degi var hún stað­ráðin í að vinna ekki við annað en tann­lækn­ingar hér, fagið sem hún hafði unnið við í tutt­ugu ár áður en hún þurfti að flýja heima­land sitt. Það tók lengri tíma en hún átti von á en ef allt gengur eftir verður hún orðin full­gildur tann­læknir fyrir árs­lok.
„Allir í skólanum eru vinir mínir“
ViðtalFólkið sem fékk að vera

„Allir í skól­anum eru vinir mínir“

Ljós­myndin af litla lang­veika drengnum sem stóð í dyr­unum, horfði út í myrkrið og beið þess að lög­reglan færði hann úr landi, hreyfði við mörgum. Hún átti þátt í að fjöldi fólks mót­mælti ákvörðun stjórn­valda um brott­vísun. Þrýst­ing­ur­inn bar árangur og fjöl­skyldan sneri aftur. Í dag gengur börn­unum vel í skóla og eiga marga vini, Kevin er frískur því hann fær lækn­is­þjón­ustu og for­eldr­arnir reka sitt eigið fyr­ir­tæki.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár