Fólkið sem fékk að vera
Greinaröð nóvember 2019

Fólkið sem fékk að vera

Inn á milli fjölda frásagna af fólki sem sent er úr landi og út í óvissuna þrátt fyrir augljósa neyð leynast sigursögur hinna, sem íslensk stjórnvöld buðu velkomin. Hér eru sagðar sögur þriggja ólíkra fjölskyldna sem eiga það sameiginlegt að hafa fengið tækifæri til að byggja sér upp nýtt líf á Íslandi og hefur heppnast það vel. Allar þakka fjölskyldurnar velgengni sína stuðningi og hlýhug annars fólks.
„Allir í skólanum eru vinir mínir“
ViðtalFólkið sem fékk að vera

„Allir í skól­anum eru vinir mínir“

Ljós­myndin af litla lang­veika drengnum sem stóð í dyr­unum, horfði út í myrkrið og beið þess að lög­reglan færði hann úr landi, hreyfði við mörgum. Hún átti þátt í að fjöldi fólks mót­mælti ákvörðun stjórn­valda um brott­vísun. Þrýst­ing­ur­inn bar árangur og fjöl­skyldan sneri aftur. Í dag gengur börn­unum vel í skóla og eiga marga vini, Kevin er frískur því hann fær lækn­is­þjón­ustu og for­eldr­arnir reka sitt eigið fyr­ir­tæki.