Steina og Woody Eftir að hafa verið svip­mikil í lista­sen­unni þar ytra voru hjónin komin á aldur og að falla í gleymsk­unnar dá þegar Hrafn­hildur ákvað að gera heim­ild­ar­mynd um þau, með þann draum um að gera þau fræg aftur. Fyrir ári var Steinu svo boðið að taka þátt í stórri sýn­ingu á Whitney-safn­inu í New York.

„Fannst bilað að þessi hjón væru fallin í gleymskunnar dá“

Ný heim­ild­ar­mynd, Vasulka áhrifin, er vænt­an­leg í kvik­mynda­hús núna um helg­ina en hún fékk áhorf­enda­verð­laun Skjald­borg­ar­há­tíð­ar­innar fyrir skömmu. Myndin er hug­ar­fóstur Hrafn­hildar Gunn­ars­dóttur leik­stjóra og fjallar um hjónin Steinu og Woody Vasulka en þau voru frum­kvöðlar í víd­eólist.

Fiðlu­leik­ar­inn Steina Bjarna­dóttir hitti tékk­neska kvik­mynda­leik­stjór­ann Woody Vasulka í Prag seint á sjötta ára­tugnum. Það fyrsta sem Woody sagði við hana var: „Viltu gift­ast mér?“ „Þetta var sumsé bón­orð við fyrstu sýn, ekki bara ást við fyrstu sýn,“ útskýrir Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir sem leik­stýrir mynd­inni. „Ég veit ekki hvort hann bað hennar vegna þess að Steina var svona sæt eða hvort það var af löngun til að kom­ast frá Tékk­landi,“ segir hún og hlær, en útkoma þessa fyrsta fundar var ekki ein­ungis yfir sex­tíu ára hjóna­band og vin­skapur heldur einnig stór­merki­legt list­rænt sam­starf en hjónin voru frum­kvöðlar í víd­eólist á alþjóða­vísu. Steina og Woody Vasulka fluttu til New York árið 1965 og hófu til­raunir með vídeó og raf­ræn boð og voru meðal ann­arra í sam­starfi með Andy Warhol, Philip Glass og Laurie Anderson.

 „Það fyrsta sem Woody sagði við hana var: „Viltu gift­ast mér?“ 

Síminn hjá þeim …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár