Í kvíðakasti löngu áður en hvolpurinn kom á heimilið

Hrönn Sveins­dóttir, framkvæmda­stjóri Bíó Paradísar, segir frá erfið­leikunum sem fylgja því þegar fimm manna fjöl­skylda fær sér hvolp.

Við vorum að fá okkur lang­þráðan hund, reyndar í þessu tilviki hvolp. Ég var alveg á móti þessu. Ég veit alveg hvernig við erum, við erum ekki skipulögð, við erum ekki útivistar­fólk, við erum ekki efni í góða gæludýra­eigendur. Það hefur gengið á ýmsu þegar gæludýr hafa komið inn á heimilið. Það hefur alltaf verið mjög vel hugsað um þau en eitthvað gerst.

Núna, eftir margra ára suð, grátbænir og loforð um einhverja hegðun sem ég hef aldrei séð, þá fengum við okkur hvolp. Hún er bara tíu vikna tík úr sveit, agalega sæt og allt það, en ég og maðurinn minn fórum að átta okkur á því að nú væri allt að fara að breytast og vorum komin í kvíðakast eiginlega löngu áður en hvolpurinn kom inn á heimilið. Við frestuðum því að sækja hann.

Síðan býr hún með okkur núna, þessi nýi veruleiki er runninn upp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár