Á milli okkar er strengur

Með ell­efu mín­útna milli­bili fædd­ust þær Alma Mjöll og Helga Dögg Ólafs­dætur, ein­eggja tví­burar. Á milli þeirra er órjúf­an­legur strengur og þótt rof hafi orðið á milli þeirra þegar ruglið tók yfir, Alma Mjöll veikt­ist og ætl­aði að svipta sig lífi, þá eru þær alltaf mik­il­væg­ustu mann­eskj­urnar í lífi hvor ann­arrar. Þær hafa jafn­vel farið nokkurn veg­inn sömu leið­ina í líf­inu og urðu óléttar þegar nákvæm­lega jafn langur tími var lið­inn frá útskrift úr Lista­há­skól­anum.

Á milli okkar er strengur

Helga Dögg Ólafs­dóttir. Hinn helm­ing­ur­inn. Hvernig get ég best lýst Helgu Dögg? Hún er upp­á­halds­mann­eskjan mín, upp­á­halds­líf­veran mín en á sama tíma mest pirr­andi ein­tak sem ég þekki. Ég þekki alla hennar kosti og alla hennar galla, ég þekki hana betur en allir, ég þekki hana betur en hún þekkir sig sjálf. Ég þekki kost­ina við gall­ana hennar og gall­ana við kosti hennar. Ég veit til dæmis að óör­yggið hennar gerir hana oft svo sæta og sjálfs­ör­yggið hennar gerir hana stundum leið­in­lega. 

Saga okkar nær langt aftur í tím­ann, raunar eins langt og sögur fólks ná aftur í tím­ann. Við urðum teymi um leið og við urðum til. Til­neyddar til að eyða fyrstu níu mán­uðum til­veru okkar saman í einu og sama leg­inu. Helga Dögg Ólafs­dóttir er tví­bura­systir mín, ein­eggja tví­bura­systir mín, klónið mitt eins og ég kýs stundum að kalla hana. 

Þegar við loks komumst út úr …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár