Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
Sagði Hafn­ar­fjarð­ar­mál ekki til rann­sóknar **Hulda Elsa Björg­vins­dóttir**, svið­stjóri ákæru­sviðs lög­reglu, full­yrti í við­tali við RÚV þann 2. maí 2018, eftir umfjöllun Stund­ar­innar um afskipti Braga Guð­brands­sonar af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu, að meint brot væru ekki til rann­sóknar. Málið var hins vegar form­lega til rann­sóknar á þeim tíma og hefur nú lög­regla við­ur­kennt mis­tök við skrán­ingu.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gerði „mjög baga­leg mis­tök“ þegar emb­ættið afgreiddi kæru frá barna­vernd­ar­nefnd vegna Hafn­ar­fjarð­ar­máls­ins svo­kall­aða í des­em­ber 2016 án þess að fram­kvæma rann­sókn á hugs­an­legum kyn­ferð­is­brotum gegn barni og skráði rang­lega í mála­skrár­kerfi sitt að mál­inu hefði verið „vísað frá“. 

Þetta hafa lög­reglan og rík­is­sak­sókn­ari við­ur­kennt skrif­lega sam­kvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar eftir að nið­ur­fell­ing máls­ins var kærð. Lög­reglan segir að um „mis­tök“ hafi verið að ræða; ætl­unin hafi aldrei verið að vísa mál­inu frá og engin ákvörðun um slíkt verið tekin. Samkvæmt skiln­ingi rík­is­sak­sókn­ara var því Hafn­ar­fjarð­ar­málið form­lega til lög­reglu­rann­sóknar þegar Bragi Guð­brands­son, þáver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu og núver­andi full­trúi Íslands í barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna, beitti sér fyrir því í sam­tali við barna­vernd­ar­starfs­mann að stúlk­urnar í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu svo­kall­aða yrðu látnar umgang­ast föður sinn sam­kvæmt þeim skráðu sam­tíma­gögnum sem til eru um málið. 

Að sama skapi var málið form­lega opið hjá lög­reglu þegar Hulda Elsa Björg­vins­dóttir, sviðs­stjóri ákæru­sviðs lög­reglu, full­yrti í við­tali við RÚV þann 2. maí 2018, eftir umfjöllun Stund­ar­innar um afskipti Braga af umræddu barna­vernd­ar­máli, að meint brot væru ekki til rann­sóknar. Stundin leit­aði skýr­inga á ummælum Huldu á sínum tíma og spurði hvenær mál­inu hefði verið vísað frá og hvenær máls­að­ilum hefði verið til­kynnt um það. Hulda Elsa sagð­ist þá ekki ætla að veita slíkar upp­lýs­ingar. 

Hafði efasemdir um trúverðugleika upplýsinganna

Samkvæmt gögnum sem nú liggja fyrir ætl­að­ist lög­reglu­stjóri til þess að barna­vernd­ar­yf­ir­völd létu fara fram könn­un­ar­við­tal af barn­inu eins og barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar hafði óskað eftir í des­em­ber­byrjun 2016.

Stundin hefur áður greint frá tvennum mis­tökum sem urðu á þessu stigi máls­ins hjá Barna­vernd­ar­stofu og Barna­húsi. Annars vegar bil­aði tölvu­póst­kerfi stofn­an­anna og hins vegar gleymd­ist að sækja til­vís­un­ar­bréf frá barna­vernd­ar­nefnd­inni í póst­hólf stofn­un­ar­innar. Nú er ljóst að lög­regla gerði einnig þau mis­tök í des­em­ber 2016 að „vísa frá“ mál­inu án þess að greina máls­að­ilum frá því. 

Eftir að til­vís­un­ar­bréfið kom í leit­irnar boð­aði Bragi Guð­brands­son til fundar um mál­efni barns­ins sem fram fór þann 20. jan­úar 2017. Þar tók Bragi ein­arða afstöðu gegn því að stúlkan færi í við­tal í Barna­húsi, enda hefði hún þegar farið í könn­un­ar­við­tal og skýrslu­tökur fyrir dómi um tveimur árum áður. Þá lýsti hann efa­semdum um trú­verð­ug­leika þeirra upp­lýs­inga sem borist höfðu um meint kyn­ferð­is­brot. Nið­ur­staða fund­ar­ins varð sú að barnið færi ekki í Barnahús. 

Óvenjuleg afskipti höfðu áhrif á framgang lögreglurannsóknar

Ólöf Ásta Farest­veit, for­stöðu­maður Barna­húss, sagði í sam­tali við Stundina sum­arið 2018 að það væri mjög óal­gengt að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu hefði afskipti af því hvort til­tekin börn færu í Barnahús eða boði til fundar um slík mál. Fyrr­ver­andi starfs­maður Barna­húss tók í sama streng og sagði slíkt ekki hafa tíðkast í sinni starfs­tíð. 

Í þessu til­viki höfðu afskipti Braga og ákvörð­unin sem tekin var á fund­inum bein áhrif á fram­gang lög­reglu­rann­sóknar máls­ins. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara fyrr á þessu ári sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

8 mín. lestur

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár