Hrafn Gunnlaugsson um fötlun Íslendinga: „Þeir halda að þeir séu svo hæfileikaríkir“

Hrafn Gunn­laugs­son kvik­mynda­leik­stjóri er í við­tali í sænsku tímarti þar sem hann gagn­rýnir Íslend­inga í léttum dúr fyrir hégóm­leika og neyslu­æði.

Hrafn Gunnlaugsson um fötlun Íslendinga:  „Þeir halda að þeir séu svo hæfileikaríkir“
Íslend­ingar hafa ekk­ert lært Hrafn Gunn­laugs­son segir að Íslend­ingar hafi ekk­ert lært af efna­hags­hrun­inu og séu ennþá neyslu­sjúkir. Mynd: Tor Johnsson

„Allir Íslend­ingar þjást af þessu sama, þeir halda að þeir séu svo hæfi­leik­a­ríkir. Þetta er fötlun okkar sem þjóðar. Þegar þú býrð í ein­angrun á hjara ver­aldar og horfir öllum stundum í spegil þá byrjar þú á end­anum að dást að sjálfum þér, svona eins og Nar­k­is­sos.. [...] Að við erum ekki heims­meist­arar í fót­bolta, við skiljum það ekki,“ segir Hrafn Gunn­laugs­son kvik­mynda­leik­stjóri í við­tali við sænska viku­tíma­ritið Fokus sem nýlega kom út.  Með til­vís­un­inni í Nar­k­is­sos á Hrafn við sam­nefnda per­sónu úr grísku goð­sög­unum sem varð ást­fang­inn af sinni eigin speg­il­mynd þegar hann sá hana í tjörn einni.

Í við­tal­inu lætur Hrafn vaða á súðum, eins og hann hefur svo oft áður gert í gegnum tíð­ina, og lætur Íslend­inga heyra það, sann­ar­lega í léttum dúr, fyrir heim­ótt­ar­skap og hégóm­leika. Eitt af því sem blaða­mað­ur­inn sænski staldrar við er að Hrafn sé ennþá svona til­kippi­legur til að reyna að hneyksla Íslend­inga líkt og hann gerði á árum áður með kvik­myndum sínum. 

Þungur hnífurOrða­skiptin um þunga hníf­inn í Hrafninn flýgur eru örugg­lega með þekkt­ari senum úr íslenskum kvik­myndum.

Hrafn er nokkuð vel þekktur í Svíþjóð vegna kvik­mynd­ar­innar Hrafninn flýgur sem lengi var sýnd í sænskum skólum til að kynna nem­endur fyrir vík­inga­tím­anum á Norð­ur­lönd­unum. Má ugg­laust segja að hlut­falls­lega fleiri Svíar en Íslend­ingar viti hvaðan fras­inn „Þungur hnífur“, eða „Tungur knivur“ þegar línan er sænskuð, er kom­inn enda er Hrafninn flýgur, eða Korpen flyger á sænsku, oft ein fyrsta til­vís­unin í Ísland sem Svíar sem nálg­ast miðjan aldur gera þegar þeir hitta Íslend­inga. 

Hrafn er auk þess mennt­aður í kvik­mynda­gerð í Svíþjóð og ving­að­ist við sjálfan Ingmar Bergman, kvik­mynda­leik­stjór­ann sem er eins konar þjóð­hetja í heima­landi sínu. Um sam­band þeirra Bergmans segir Hrafn í við­tal­inu að það hafi verið ein­hver taug á milli þeirra þar sem þeir hafi lík­ast til verið álíka galnir. 

„Fokk­merki stjórn­leys­ingja í smettið á kerf­inu.“  

Hús með þrettán hurðum

Tilefni við­tals­ins var meðal ann­ars 35 ára afmæli Hrafninn  flýgur, þess­arar þekkt­ustu myndar Íslend­ings á sænskri grundu.

Þegar blaða­mann Fokus bar að garði að heim­ili Hrafns í Laug­ar­nes­inu, sem blaða­mað­ur­inn lýsir sem ótrú­legum heimi út af fyrir sig, var Hrafn í baði. „Ég ligg í baðkar­inu með kon­unni minni og börn­unum en komdu í bæinn í gegnum stærstu dyrnar á hús­inu.“ 

Vanda­málið er hins vegar að það eru 13 hurðir  á hús­inu og blaða­mað­ur­inn, Kristoffer Törnmalm, finnur ekki réttu dyrnar og spyr sig að því hvernig maður kom­ist inn í slíkt hús eig­in­lega: „Hvernig fer maður inn í hús sem í raun er frjálst vax­andi lista­verk? Safn­haugur af járnarusli og reka­viði sem sér­vitr­ingur hefur sankað að sér. Fokk­merki stjórn­leys­ingja í smettið á kerf­inu.“  

Törnmalm hverfur frá og snýr aftur til baka einum klukku­tíma síðar og er Hrafn þá stað­inn upp úr bað­inu og opnar eina af dyr­unum að hús­inu. 

„ Og hvað gerir maður til að reyna að hafa gaman?“

Hið nýríka sjálf Íslendinga

Í við­tal­inu er Hrafni tíð­rætt um sjálfs­mynd Íslend­inga eftir hrunið og neyslu­venjur þjóð­ar­innar og segir hann meðal ann­ars að lífið á Íslandi sé svo fábreyti­legt að fólk fylli gjarnan upp í tómið með því að kaupa sér hluti. Að mati Hrafns hafa Íslend­ingar ekk­ert breyst eftir efna­hags­hrunið 2008. „Þeir eru alveg jafn barna­legir í dag og þá. Þetta hefur ekki breyst mikið. Ég held að við sem komum frá eyjum og höfum ekki land­fræði­leg tengsl við önnur lönd getum aldrei lært að lifa á annan hátt en þann sem við lærum í æsku. Þess vegna eru Íslend­ingar svo barna­legir, ekki endi­lega á nei­kvæðan hátt, og þeir verða svo stór­eygir þegar þeir sjá eitt­hvað nýtt. „Vá, hvað þú átt fínan bíl.“ En þetta hefur líka sinna sjarma,“ segir Hrafn í við­tal­inu. 

Blaða­mað­ur­inn lýsir til­finn­ingu sinni fyrir Íslend­ingum þegar hann kom fyrst til Íslands -  fyrir efna­hags­hrunið árið 2008 - þegar veru­leik­inn á Íslandi var allt annar í kvik­myndum Hrafns Gunn­laugs­sonar: „Dýrir bílar, hús í útlöndum, dýr merkja­vara - ekk­ert virt­ist vera nóg til að seðja neyslu- og kaup­þorsta Íslend­inga,“ segir blaða­mað­ur­inn. 

Hrafn tengir við þessa lýs­ingu blaða­manns­ins og segir hann að Íslend­ing­ur­inn minni að mörgu leyti á Pól­verj­ana sem hann kynnt­ist í Svíþjóð þegar hann var þar við nám á átt­unda ára­tugnum. „Ég kynn­ist nokkrum Pól­verjum. Þeir keyptu alla þá hluti sem þeir mögu­lega gátu: bíla, föt. Fyrir þá veittu þessir hlutir þeim slíka gleði eftir að hafa lifað við mikla fátækt. Að sama skapi voru Íslend­ingar bænda­sam­fé­lag fram að seinna stríði, það var fyrst þar á eftir sem Ísland varð að nútíma­sam­fé­lagi. Og þú getur rétt ímyndað þér hvort mann­eskjur sem hafa alist upp við slíka fátækt verði ekki hug­fagnar af hlutum. Svo er líka svo leið­in­legt á Íslandi. Það er dimmt, kalt og ein­angrun er mikil. Og hvað gerir maður til að reyna að hafa gaman? Maður kaupir hluti! Snjó­sleða, bát og svo fram­vegis. Það er draumur hins fátæka manns að vera ríkur.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár