Verkalýðsfélög segja engin rök með frumvarpi Bjarna

ASÍ og BSRB leggj­ast gegn frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar um lækkun erfða­fjár­skatts. Félögin segja að skatt­ur­inn sporni gegn ójöfn­uði og fjár­magni mik­il­væg verk­efni rík­is­ins.

Verkalýðsfélög segja engin rök með frumvarpi Bjarna
Henný Hinz og Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir Hag­fræð­ingar ASÍ og BSRB segja þá leið sem stjórn­völd hyggj­ast fara við lækkun erfða­fjár­skatts illa rök­studda.

Verka­lýðs­fé­lög leggj­ast gegn lækkun erfða­fjár­skatts þar sem hún muni leiða til nið­ur­skurðar í opin­berri þjón­ustu. ASÍ og BSRB segja engin rök fyrir lækkun skatts­ins með þeim hætti sem stjórn­völd áætla að gera.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, birti frum­varp um lækkun erfða­fjár­skatts á sam­ráðs­gátt stjórn­valda á mið­viku­dag. Skatt­ur­inn lækkar um helm­ing á upp­hæðir undir 75 millj­ónum króna og verður rík­is­sjóður af tveimur millj­örðum vegna þessa á næsta ári verði frum­varpið að lögum.

„ASÍ telur erfða­fjár­skatt skil­virka og rétt­láta leið til tekju­öfl­unar sem vinnur gegn ójöfn­uði og óæski­legri sam­þjöppun auðs milli kyn­slóða,“ segir í umsögn sam­bands­ins, sem Henný Hinz, hag­fræð­ingur ASÍ, skrifar undir. „ASÍ telur engin rök mæla með lækkun erfða­fjár­skatts líkt og áformað frum­varp gerir ráð fyrir. Þá áréttar ASÍ afstöðu sína um að þegar hafi verið of hart gengið fram í að rýra tekju­stofna rík­is­ins og rekstur rík­is­sjóðs er sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi frum­varpi til fjár­laga í járnum á kom­andi ári. Frekari lækkun á tekjum, líkt og hér er lögð til, mun því að óbreyttu kalla á enn frekara aðhald og nið­ur­skurð í opin­berri þjón­ustu.“

Í umsögn BSRB er svipuð afstaða tekin og bent á að sú upp­hæð sem rík­is­sjóður verður af vegna skatta­lækk­un­ar­innar sam­svari árlegum beinum fram­lögum rík­is­ins til Sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. „Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Jóni Stein­dóri Valdi­mars­syni kemur fram að mið­gildi heild­ar­verð­mætis dán­ar­búa árið 2017 var 14,5 mkr. og mið­gildi arfs­fjár­hæðar erf­ingja var 3,5 mkr. sama ár,“ segir í umsögn­inni sem Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, hag­fræð­ingur BSRB, skrifar undir. „Þrepa­mörk við 75 mkr. eru því veru­lega há en ekki liggur fyrir rök­stuðn­ingur á því við­miði. BSRB varar við frek­ari veik­ingu skatt­stofna rík­is­sjóðs og þar með lækkun á hlut­falli erfða­fjár­skatts. Standi vilji til að lækka skatt­hlut­fall erfða­fjár­skatts væri nær að skoða ein­hverja hækkun á skatt­frjálsa hluta skatt­stofns­ins.“

Í frum­varp­inu er lagt til að erfða­fjár­skattur verði þrepa­skiptur þannig að hann nemi 5 pró­sentum af fjár­hæð allt að 75 millj­ónum króna, en 10 pró­sentum af því sem er umfram þá upp­hæð. Skatt­ur­inn er nú 10 pró­sent óháð fjár­hæð. Þá er einnig lagt til að fjár­hæð­ar­mörk skatt­þrepanna taki árlegum breyt­ingum miðað við þróun vísi­tölu neyslu­verðs. Fyr­ir­fram­greiddur arfur verður skatt­lagður á hærra skatt­þrep­inu, það er 10 pró­sent.

Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir að tekjur af erfða­fjár­skatti verði 5,2 millj­arðar króna. Verði þrepa­skipt­ing­unni komið á með lögum munu tekj­urnar lækka um 2 millj­arða og verða 3,2 millj­arðar. Tekið er fram að ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra sem fá arfi úthlutað muni hækka á móti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár