Þorsteinn Már í Samherja hagnaðist um 5,4 milljarða í fyrra

Eign­ar­halds­fé­lag Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Helgu Guð­munds­dóttur, fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, bætti við sig 9 millj­arða króna eignum í fyrra.

Þorsteinn Már í Samherja hagnaðist um 5,4 milljarða í fyrra
5,4 millj­arða hagn­aður Félag Þor­steins Más Sam­herja­for­stjóra hagn­að­ist um tæp­lega 5,4 millj­arða króna í fyrra. Mynd: Haraldur Guðjónsson

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og stærsti hlut­hafi Samherja, hagn­að­ist um tæp­lega 5,4 millj­arða króna í Eign­ar­halds­fé­lag­inu Steini ehf. í fyrra. Félagið heldur á hluta­bréfum Þor­steins Más í Samherja og á hann það ásamt fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni, Helgu S. Guð­munds­dóttur.  Þor­steinn Már á 51 pró­sent í félag­inu og Helga á 49 pró­sent. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Steins fyrir árið 2018 sem nýlega var skilað til árs­reikn­inga­skrár Rík­is­skatt­stjóra.

Samherji er langstærsta útgerð­ar­fé­lag lands­ins þegar tekið er til­lit til inn­lendrar og erlendrar starf­semi útgerð­ar­innar. Félagið er annar stærsti, ein­staki kvóta­eig­andi lands­ins á eftir Brimi, áður HB Granda, en á auk þess stóran hlut í meðal ann­ars Sílda­vinnsl­unni, einni stærsti útgerð lands­ins. Samherji hagn­að­ist um 8.7 millj­arða króna í fyrra og var félagið þá með 43 millj­arða króna tekjur. 

Þor­steinn Már er einn rík­asti Íslend­ing­ur­inn og ratar hann á hverju ári í yfir­lit fjöl­miðla yfir íslenskt auð­fólk þegar skatta­uppp­lýs­ingar eru gerðar opin­berar. Þor­steinn Már var með ríf­lega 100 millj­ónir króna í tekjur í fyrra, en tekjur hans segja hins vegar aðeins litla sögu um þá ótrú­legu auð­söfnun sem árs­reikn­ingur eign­ar­halds­fé­lags hans sýnir ár hvert og hefur gert lengi.

Níu milljarða eignaaukning

Eignir félags­ins nema nú rúm­lega 48 millj­örðum króna og hafa þær hækkað um ríf­lega 9 millj­arða króna á milli áranna 2017 og 2018. Verð­mætasta eign félags­ins eru hluta­bréf í Samherja hf. sem bók­færð eru á 22 millj­arða króna. Inni í félag­inu eru íslenskar eignir og starf­semi Samherja. Hluta­bréf Eign­ar­halds­fé­lags­ins Steins ehf. í Samherja Holding, félagi utan um erlenda starf­semi Samherja, eru bók­færð á tæp­lega 18 millj­arða króna.

Á móti þessum eignum eru nán­ast engar skuldir, en þær nema 4 millj­ónum króna. Þannig að segja má að félagið skuldi ekk­ert á móti þessum tæp­lega 50 millj­arða króna eignum. 

Tók við hlutabréfum í Samherjafélögum

Ástæðan fyrir þess­ari miklu eigna­aukn­ingu Eign­ar­halds­fé­lags­ins Steins ehf. er að í fyrra var hlutafé Fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Fjarðar ehf., sem átti hluta­bréf í Samherja hf. og Samherja Holding ehf. lækkað, og var hluta­fjár­aukn­ingin greidd út með hluta­bréfum í félög­unum tveimur. 

Eins og segir í árs­reikn­ingi Steins ehf.:  „Í águst 2019 var hlutafé Fjár­fest­inga­fé­lags­ins Fjarðar ehf. lækkað og var hluta­fjár­lækk­unin greidd með hluta­bréfum í Samherja hf. og Samherja Holding ehf. til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Steins ehf. Eftir hluta­fjár­lækk­un­ina á Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn ehf. engin bréf í Fjár­fest­inga­fé­lag­inu Firði ehf. en eign­að­ist 7,41% eign­ar­hlut í Samherja hf. og 7,41% eign­ar­hlut í Samherja Holding ehf.“

Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn ehf. eign­að­ist því frek­ari hluta­bréf í bæði Samherja hf. og Samherja Holding ehf. á árinu. 

„Þannig að út frá útlits­legum sjón­ar­miðum eða orð­spors­legum þá er það væg­ari leið að gera þetta svona en að greiða arð.“

Dulbúnar arðgreiðslur

Enginn arður var tek­inn út úr Steini í fyrra en fé, 394 millj­ónir, var greitt út úr félag­inu og til hlut­hafa þegar félagið sjálft keypti eigin bréf í jan­úar 2009, líkt og félagið hefur raunar gert áður.

Stundin hefur fjallað um að slík leið sé aðferð til þess að taka „dul­bú­inn arð“ út úr eign­ar­halds­fé­lögum. Blaðið ræddi meðal ann­ars við sér­fræð­ing sem útskýrði aðferð­ina, sem er full­kom­lega lög­leg, með eft­ir­far­andi hætti: „Það að velja þessa leið er örugg­lega af skatta­legum ástæðum meðal ann­ars. Svo hafa menn kom­ist upp með að taka arð út úr félögum með þessum hætti án þess að það veki eins mikla athygli og þegar menn taka eig­in­legan arð út úr fyr­ir­tækjum. Þannig að út frá útlits­legum sjón­ar­miðum eða orð­spors­legum þá er það væg­ari leið að gera þetta svona en að greiða arð,“ sagði sér­fræð­ing­ur­inn, sem ekki vildi láta nafn síns, getið í sam­tali við Stundina síðla árs í fyrra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sjávarútvegur

Samherji greiðir nær enga skatta á Kýpur af tugmilljarða eignum
FréttirSjávarútvegur

Samherji greiðir nær enga skatta á Kýpur af tug­millj­arða eignum

Dótt­ur­fé­lög Samherja á Kýpur stunda millj­arða króna við­skipti með fisk við önnur félög Samherja en þessi við­skipti koma ekki fram í opin­berum gögnum Hagstofu Íslands. Félögin greiddu aðeins 22 millj­ónir króna í skatta þar í landi á árunum 2013 og 2014, þrátt fyrir að eiga rúm­lega 20 millj­arða eignir þar. Félög Samherja hafa meðal ann­ars lánað pen­inga til Íslands í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár