Hefur verið í verkjakasti frá því í júní 2017

Nikólína Hildur Sveins­dóttir hefur glímt við legs­límuflakk í 17 ár, frá því hún var ell­efu ára. Fékk ekki grein­ingu fyrr en fyrir tveimur árum. „Ég tek einn dag í einu, ekki vegna þess að ég vilji það heldur vegna þess að ég þarf það.“

Vangreind í fimmtán ár
Van­greind í fimmtán ár Nikólína hefur glímt við legs­límuflakk allt frá því hún varð kyn­þroska. Það var ekki þó ekki fyrr en fimmtán árum síðar sem hún var greind. Mynd: Davíð Þór

„Ég byrj­aði á blæð­ingum ell­efu ára og ég man að ég lá í keng á stofu­gólf­inu, öskr­andi af verkjum. Ég hugs­aði með mér: Á þetta virki­lega að vera svona?“ Þannig lýsir Nikólína Hildur Sveins­dóttir upp­haf­inu á lífi sínu með legs­límuflakki, sjúk­dómi sem hefur fylgt henni í sautján ár og haft áhrif á allt hennar líf.

Nikólína segir að hún hafi alla tíð frá því að hún varð kyn­þroska fundið fyrir gríð­ar­lega miklum sárs­auka við blæð­ingar, sárs­auka sem hafi yfir­tekið allan lík­amann. Það hafi bara ágerst eftir því sem hún elt­ist, hafi haft veru­leg áhrif á skóla­göngu hennar og hún hafi gengið fyrir verkja­lyfjum. „Þetta var saga mín öll mín tán­ingsár, sárs­auk­inn og verkirnir juk­ust bara með aldr­inum. Ég leit­aði til heim­il­is­læknis vegna þess, ég var sett á pill­una fjórtán ára, ekki vegna getn­að­ar­varna­hlut­ans heldur til að koma reglu á blæð­ing­arnar. Það breytti samt engu varð­andi verk­ina, það breytti ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár