„Ég trúi því að dagurinn í dag sé upphaf að einhverju slæmu“

Þungt var yfir andstæðingum þriðja orku­pakkans á Austur­velli í dag eftir samþykkt þings­ályktunar­tillögu um innleiðingu hans. Þau telja nú að síðasta hálm­stráið sé forseti lýðveldisins.

Sorgleg tíðindi Andstæðingar þriðja orkupakkans voru nokkuð slegnir eftir að hann var samþykktur á Alþingi í dag, þar á meðal Jón Valur Jensson sem sagði afgreiðsluna sorglega.

Innleiðing þriðja orku­pakkans var samþykkt á Alþingi fyrir hádegi í dag með yfir­gnæfandi meirihluta atkvæða. 46 þingmenn greiddu atkvæði með orku­pakkanum en 13 voru á móti, þingmenn Flokks fólksins og Miðflokksins auk Jóns Þórs Ólafs­sonar í Pírötum og stjórnar­þing­mannsins Ásmundar Friðriks­sonar úr Sjálfstæðis­flokki.

Andstæðingar þriðja orku­pakkans mættu bæði á þingpalla og einnig á Austur­völl til að mótmæla afgreiðslunni og voru þeir nokkuð daufir í dálkinn þegar Stundin tók hús á þeim. Þeir hugðust þó ekki gefast upp og skora nú á forseta Íslands að neita að staðfesta þings­ályktunar­tillöguna um þriðja orku­pakkann.

„Þingmenn eru að ganga erinda örfárra sérhagsmuna­hópa en ekki almennings í landinu“

Íslend­ingar mýs en ekki mennFjóla Fel­ix­dóttir var þung­orð í garð rík­is­stjórn­ar­innar og þing­heims vegna sam­þykktar þriðja orku­pakk­ans.

Ríflega eitthundrað manns voru mættir á Austur­völl um hádegisbil þar sem samþykkt orku­pakkans var mótmælt. Þungt var yfir sumum mótmælenda vegna málsins. „Því miður þá finnst mér baráttan heldur veiklynd hérna. Ég segi að gulu vestin í Frakk­landi séu menn, en Íslendingar mýs,“ sagði Fjóla Felix­dóttir í samtali við Stundina. Hún sagðist telja að samþykkt þriðja orku­pakkans væri bara upphafið, fleira myndi koma til og Íslendingar myndu missa full­veldið í hendur erlendra aðila.

Þrátt fyrir að Alþingi hafi afgreitt þriðja orku­pakkann ætluðu mótmælendur ekki að gefa andstöðuna upp á bátinn. „Forseti Íslands getur snúið þessu við,“ sagði Jón Valur Jensson sem hefur verið býsna áberandi í andstöðunni við málið síðustu misseri. Jón Valur sagði þó að hafa yrði hraðar hendur við að safna undir­skriftum við áskorun til forseta því stuttur tími væri orðinn til stefnu.

Þau sem Stundin ræddi við lýstu almennt þeirri skoðun að þau treystu ekki þing­mönnum og Alþingi. Þá lýsti fólk áhyggjum sínum af því að verið væri að framselja vald í hendur Evrópu­sambandsins, að verið væri að veikja lýðræðið og að yfirráð yfir orku­auðlindunum myndu færast úr höndum Ísland. „Þingmenn eru að ganga erinda örfárra sérhagsmuna­hópa en ekki almennings í landinu,“ sagði Guðmundur Beck. „Ég trúi því að dagurinn í dag sé upphaf að einhverju slæmu,“ sagði Helga Austmann sem sagði einnig að hún mótmælti í dag, ekki fyrir sig heldur afkomendur sína.

And­stæð­ingar mót­mæltuNokkur fjöldi mætti á Aust­ur­völl til mót­mæla. Fjöldinn var þó tal­inn í tugum en ekki hund­ruðum.
Íslenska fán­anum flaggaðMót­mæl­endur veif­uðu margir hverjir íslenska fán­anum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoðar­maður Sigmundar réttlætir full­gildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“

Hinn umdeildi samningur um vernd orku­fjár­festinga varð ekki bindandi fyrir Ísland fyrr en ríkis­stjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar fullgilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við undir­ritun samningsins 20 árum áður var full­gildingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoðar­maður Sigmundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutning af málinu, en önnur Evrópu­ríki töldu ástæðu til að samþykkja sérstaka yfir­lýsingu um forræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með undir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samningnum í hvívetna.
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orku­fjár­festinga

Með full­gildingu ECT-samningsins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum viðskiptum með orku­auðlindir og að beita sér fyrir samkeppni, markaðs­væðingu og samvinnu á sviði orku­flutninga. Reynt gæti á ákvæði samningsins ef upp koma deilur um lagningu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal annars notað samninginn sem vopn gegn stjórnvalds­aðgerðum sem er ætlað að halda niðri raforku­verði til almennings.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár