Katrín skorar á andstæðinga orkupakkans að styðja auðlindaákvæði í stjórnarskrá

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kaus með inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans á Alþingi og beindi hvatn­ing­ar­orðum til and­stæð­inga að verja íslenskt eign­ar­hald á orku­auð­lindum. Orku­pakk­inn var sam­þykktur á Alþingi rétt í þessu með 46 atkvæðum gegn 13.

Katrín skorar á andstæðinga orkupakkans að styðja auðlindaákvæði í stjórnarskrá
Katrín Jak­obs­dóttir For­sæt­is­ráð­herra segir þriðja orku­pakk­ann vel und­ir­bú­inn á Alþingi. Mynd: Pressphotos.biz

Atkvæða­greiðslu um þriðja orku­pakk­ann lauk rétt í þessu á Alþingi og var málið sam­þykkt með 46 atkvæðum gegn 13. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra beindi orðum sínum að and­stæð­ingum máls­ins þegar hún gerði grein fyrir atkvæði sínu og kaus með inn­leið­ingu orku­pakk­ans. Hvatti hún þing­menn Mið­flokks­ins og aðra sem kusu gegn mál­inu til að styðja auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá.

„Þetta mál hefur hér verið í und­ir­bún­ingi á vett­vangi Alþingis frá árinu 2010 með ólíkar rík­is­stjórnir og ólíka flokka,“ sagði Katrín. „Þingmenn allra flokka skrif­uðu undir nefnd­ar­á­lit á sínum tíma um þetta mál. Ég tel það vel und­ir­búið, löngu full­reifað og full­rætt hér á vett­vangi Alþingis og vel und­ir­búið af hálfu stjórn­valda sem hafa sett skýra fyr­ir­vara. Og hér á eftir verður sömu­leiðis afgreidd skýr fer­ill um það hvernig beri að með­höndla til­lögu um lagn­ingu sæstrengs ef til hennar kemur.“

Sagðist hún þar af leið­andi styðja málið. „En ég nýti tæki­færið hér og heiti á þá þing­menn sem lýst hafa áhyggjum af ýmsum málum í tengslum við afgreiðslu þessa máls að standa þá saman um að tryggja hér ákvæði um þjóð­ar­eign á auð­lindum í stjórn­ar­skrá,“ bætti hún við. „Að tryggja að stað­inn verði vörður um opin­bert eign­ar­hald mik­il­vægra orku­fyr­ir­tækja. Að standa að því að setja skýr­ari lag­ara­mma um jarða- og landa­kaup og tryggja það að Alþingi búi vel um orku- og auð­linda­mál eins og við höfum heyrt af frá almenn­ingi í land­inu, en þau ein­fald­lega varða ekki þetta mál og þess vegna styð ég það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár