Álfyrirtækin ekki styrkt Orkuna okkar

Ekkert álver­anna þriggja á Íslandi hefur styrkt Orkuna okkar fjár­hags­lega. Fyr­ir­tækin eru í Samtökum iðn­að­ar­ins sem styðja inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans en eru and­víg lagn­ingu sæstrengs.

Álfyrirtækin ekki styrkt Orkuna okkar
Álver Samtök iðn­að­ar­ins styðja inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans. Mynd: Alcoa

Fyr­ir­tækin sem reka álverin þrjú á Íslandi hafa ekki styrkt Orkuna okkar, sam­tökin sem berj­ast gegn inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans. Sem aðilar að Samtökum iðn­að­ar­ins hafa fyr­ir­tækin stutt inn­leið­ingu orku­pakk­ans. Þetta kemur fram í svörum þeirra við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Orkan okkar reiðir sig á frjáls fram­lög frá stuðn­ings­fólki sam­kvæmt vef­síðu sam­tak­anna. Ekki hefur verið gefið upp að öðru leyti hvernig starf­semi þeirra og kaup á aug­lýs­ingum eru fjár­mögnuð.

Í svari Rio Tinto, sem rekur álverið í Straums­vík, kemur fram að fyr­ir­tækið hafi ekki styrkt Orkuna okkar. Fyr­ir­tækið styrkir ekki neina póli­tíska starf­semi, að sögn Bjarna Más Gylfa­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa Rio Tinto.

Alcoa Fjarðaál, sem rekur álverið á Reyð­ar­firði, hefur heldur ekki styrkt sam­tökin. „Styrkja­stefna okkar hverf­ist um að styðja við verk­efni í heima­byggð,“ segir Dagmar Ýr Stef­áns­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Alcoa.

Í svari Sól­veigar Kr. Bergmann, upp­lýs­inga­full­trúa Norð­ur­áls, sem rekur álverið á Grund­ar­tanga, kemur fram að fyr­ir­tækið hafi heldur ekki styrkt sam­tökin og jafn­framt bent á að Norðurál standi að baki afstöðu Samtaka iðn­að­ar­ins í stuðn­ingi við orku­pakk­ann.

Í umsögn Samtaka iðn­að­ar­ins til Alþingis vegna þriðja orku­pakk­ans kemur fram að sam­tökin styðji inn­leið­ingu orku­pakk­ans, en vilja ekki að Ísland teng­ist raf­orku­kerfi Evrópu með sæstreng. „Þó svo að þriðji orku­pakk­inn hafi ekki með lagn­ingu sæstrengs að gera þá ítrekast almennt að slík fram­kvæmd sam­ræm­ist ekki raf­orku­stefnu SI eða hags­munum aðild­ar­fyr­ir­tækja sam­tak­anna,“ segir í umsögn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár