Sjálflærði ljósmyndarinn frá Moldóvu sem er einn af skattakóngum Íslands

Nöfnin á list­unum yfir hæstu skatt­greið­endur Íslands eru yfir­leitt þekkt ár frá ári. Stundum koma hins vegar fram ný nöfn á list­unum, nöfn fólks sem ekki er þekkt í sam­fé­lags­um­ræð­unni. Iurie Beegurschi er eitt þeirra.

Sjálflærði ljósmyndarinn frá Moldóvu  sem er einn af skattakóngum Íslands
Orðinn vel stæður Iurie Belegurschi flutti til Íslands frá Moldavíu árið 2006 og er nú orð­inn vel stæður á því að taka ljós­myndir af íslenskri nátt­úru og vegna hluta­fjár­eignar í Guide to Iceland.

Iurie Belegurschi, 36 ára gam­all ljós­mynd­ari frá Moldóvu og einn af hlut­höfum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Guide to Iceland, er einn af skatta­kóngum Íslands árið 2018. Hann er nánar til­tekið í tólfta sæti yfir tekju­hæstu íbúa Garða­bæjar með áætl­aðar árs­tekjur upp á tæp­lega 127 millj­ónir króna. Þessa stað­reynd má að hluta til rekja til vaxtar Guide to Iceland á liðnum árum en fyr­ir­tækið hagn­að­ist um 676 millj­ónir króna og greiddi út 600 millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna í fyrra.  

Heima­land Iuries, Moldóva, var hluti af Sov­ét­ríkj­unum sál­ugu en fékk sjálf­stæði árið 1991. Alls búa 3,5 millj­ónir manna í land­inu og er það eitt fátæk­asta ríki Evrópu. Höf­uð­borgin heitir Chișinău. 

Þrír úr hlut­hafa­hópnum á list­unumÞrír úr hlut­hafa­hópi Guide to Iceland er á list­anum yfir hæstu greið­endur opin­berra gjalda á Íslandi. Meðal ann­ars stærsti hlut­haf­inn, Ingólfur Abraham Shahin.

Tveir aðrir hluthafar á listanum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tekjulistinn 2019

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár