Hönnun sem líkir eftir náttúrunni

Raphaël Costes kom til Íslands sem ferða­maður árið 2014 og hefur verið hér síðan. Hann er vöru­hönn­uður frá Frakk­landi sem býr í Vest­ur­bænum og bræðir blá­grýti.

Hönnun sem líkir eftir náttúrunni

Raphaël Costes er vöru­hönn­uður frá Frakk­landi sem hefur búið á Íslandi frá árinu 2014 þegar hann kom sem ferða­maður en end­aði á að vera um kyrrt. Hann starfar hvort tveggja sem hönn­uður í lausa­mennsku, meðal ann­ars fyrir vöru­hönn­uð­inn Þórunni Árna­dóttur, og einnig með sín eigin verk­efni undir nafn­inu Innri Innri. Raphaël lærði Master of Design Product í Strasbourg og sækir inn­blástur að miklu leyti í nátt­úr­una. „Ég hrífst af hug­mynd­inni um að líkja eftir sköpun sem verður til í nátt­úr­unni. Mér finnst áhuga­vert að skoða hvort við getum að ein­hverju leyti gert svip­aða hluti og nátt­úran gerir. Það er svo sér­stak­lega spenn­andi að fram­kvæma slíkt með hreinni orku eins og finnst hér á Íslandi,“ segir Raphaël sem vinnur núna að því að bræða blá­grýti og steypa í form og fékk styrk fyrir því verk­efni frá Hönn­un­ar­mið­stöð. „Það er erfitt að stjórna útkom­unni og hún er í raun­inni eins konar slys.“

…
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár