Ásgerður Jóna segir umferðartafir stríða gegn stjórnarskrá

Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, áheyrn­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, stóð fyrir helm­ingi þeirra mála sem tekin voru fyrir á fundi skipu­lags- og sam­göngu­ráðs. Full­trúar meiri­hlut­ans segja stuðst við fag­legar leið­bein­ingar en ekki „geð­þótta ein­stakra borg­ar­full­trúa“.

Ásgerður Jóna Flosadóttir
Ásgerður Jóna Flosa­dóttir Ásgerður er vara­borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, aðal­maður í mann­rétt­inda-, nýsköp­unar- og lýð­ræð­is­ráði, auk þess að vera áheyrn­ar­full­trúi í skipu­lags- og sam­göngu­ráði, borg­ar­ráði og for­sætis­nefnd. Mynd: Pressphotos/Geirix

Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, áheyrn­ar­full­trúi Flokks fólks­ins í skipu­lags- og sam­göngu­ráði og for­maður Fjöl­skyldu­hjálpar, stóð fyrir helm­ingi þeirra mála sem rædd voru á fundi ráðs­ins á mið­viku­dag. Öllum til­lögum Ásgerðar nema einni var hafnað eða frestað.

Ásgerður er einn af þremur áheyrn­ar­full­trúum í ráð­inu, ásamt full­trúum Sós­í­alista­flokks­ins og Mið­flokks­ins. Hafa þeir full­trúar mál­frelsi og til­lögu­rétt, en geta ekki greitt atkvæði. Á fund­inum voru ræddar tíu til­lögur Ásgerðar, fjórar fyr­ir­spurnir og ein athuga­semd. Alls voru það 15 af þeim 30 málum sem rædd voru á fund­inum sem stóð yfir í þrjá klukku­tíma.

Deilur Ásgerðar og full­trúa meiri­hlut­ans úr röðum Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar fóru fram í gegnum bók­anir í fund­ar­gerð, sem oft urðu nokkuð harð­orðar. Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks sátu í öllum til­vikum hjá.

„Stuðst er við fag­legar leið­bein­ingar [...] en ekki geð­þótta ein­stakra borg­ar­full­trúa“

Tillögur Ásgerðar sneru að umferðar- og bíla­stæða­málum. Til dæmis lagði hún fram til­lögu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár