Kaupþingsmenn meðal þeirra tekjuhæstu á Seltjarnarnesi

Tíu tekju­hæstu íbúar Sel­tjarn­ar­ness fengu rúm­lega 1,3 millj­arða króna í fjár­magnstekjur í fyrra. Tveir starfs­menn þrota­bús Kaup­þings og fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans í London eru á list­anum.

Kaupþingsmenn meðal þeirra tekjuhæstu á Seltjarnarnesi
Jóhann Pétur Reyndal Stjórn­andi hjá þrota­búi Kaup­þings var með hæstu launa­tekj­urnar á Sel­tjarn­ar­nesi. Mynd: mbl/Kristján Akureyri

Jóhann Pétur Reyndal, stjórn­ar­for­maður tísku­vöru­merkj­anna Oasis, Warehouse og Karen Millen, var með hæstu mán­að­ar­laun Seltirn­inga í fyrra, 14 millj­ónir króna. Eru félögin öll í eigu þrota­bús Kaup­þings, þar sem Jóhann sinnir eigna­stýr­ingu. Var hann með næst­hæstar heild­ar­árs­tekjur í sveit­ar­fé­lag­inu með 173 millj­ónir, en aðeins lít­ill hluti tekna hans voru fjár­magnstekjur. Þetta kemur fram í álagn­inga­skrá rík­is­skatt­stjóra.

Fjár­magnstekjur, þ.e. vaxta­tekjur, arður, sölu­hagn­aður og leigu­tekjur utan rekstrar, voru stærsta tekju­lind þeirra tíu tekju­hæstu á Sel­tjarn­ar­nesi. Námu þær í heild 1,3 millj­örðum króna hjá þessum tíu aðilum. Tekju­hæstur var hins vegar Guðni Þórð­ar­son, hinn átt­ræði stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Borg­arplasts, sem seldi hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu í fyrra til fjár­fest­ina­sjóðs­ins Alfa fram­taks. Numu fjár­magnstekjur hans í fyrra 675 millj­ónum króna, en mán­að­ar­legar tekjur hans voru þar að auki 1,7 milljón króna. Sjöfn Guð­munds­dóttir, kona Guðna og fyrrum hlut­hafi í Borg­arplasti, er númer fimm á list­anum með tæpar 112 millj­ónir í árs­tekjum, að lík­indum mest­megnis vegna söl­unnar.

Nafn Heild­ar­árs­tekjur
Guðni Þórð­ar­son 695.789.501
Jóhann Pétur Reyndal 173.027.979
Ingi­björg S Ásgeirs­dóttir 165.927.348
Arnar Scheving Thor­steins­son 117.355.815
Sjöfn Guð­munds­dóttir 111.713.103
Ragn­heiður Lára Jóns­dóttir 103.494.493
Ásbjörn Jónsson 98.749.998
Elmar Johnson 91.769.236
Róbert Vinsent Tómasson 91.612.496
Baldvin Val­týs­son 91.246.950
Helgi Magn­ús­son 89.843.717

Þriðja á list­anum er Ingi­björg Svava Ásgeirs­dóttir, iðju­þjálfi og áður lektor við heil­brigð­is­deild Háskól­ans á Akureyri. Launa­tekjur hennar námu aðeins 14 þús­und krónum á mán­uði, en fjár­magnstekjur 166 millj­ónum króna á árinu. Faðir hennar var Ásgeir Ásgeirs­son lyf­sali, sem var fram­kvæmda­stjóri Pharmacho hf., sem seinna varð að Actavis.

Sá fjórði er annar starfs­maður þrota­bús Kaup­þings, Arnar Scheving Thor­steins­son. Námu launa­tekjur hans 9,6 millj­ónum króna á mán­uði og heild­ar­árs­tekjur 117 millj­ónum króna. Ragn­heiður Lára Jóns­dóttir er í sjötta sæti list­ans, en fjár­magnstekjur hennar námu 102 millj­ónum króna á árinu. Eig­in­maður hennar, Karl Harð­ar­son, for­stjóri ThorShip, lést á síð­asta ári.

Ásbjörn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Fisk­kaupa og fleiri félaga í sjáv­ar­út­vegi, kemur þar á eftir með rúmar 2,9 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun. Auk þess námu fjár­magnstekjur hans á árinu tæpum 64 millj­ónum króna. Elmar Johnson, læknir og einn af stofn­endum ferða­þjón­ust­unnar Guide to Iceland, fékk 80 millj­ónir króna í fjár­magnstekjur í fyrra, auk tæprar millj­ónar á mán­uði í launa­tekjur.

Ásbjörn JónssonFram­kvæmda­stjóri Fisk­kaupa, hér til hægri ásamt föður sínum Jóni Ásbjörns­syni, var sá sjö­undi tekju­hæsti á Sel­tjarn­ar­nesi.

Róbert Vinsent Tómasson, fram­kvæmda­stjóri Cargo Express, fyr­ir­tækis sem sér­hæfir sig í loft­flutn­ingum, er í níunda sæti list­ans. Loks er Baldvin Val­týs­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans í London og eig­andi ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins Akrar Consult, sá tíundi tekju­hæsti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tekjulistinn 2019

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár