Fóru í boðsferð til Krímskaga á Pútínráðstefnu

Birgitta Jóns­dóttir, stjórn­ar­for­maður IMMI, og Sara Elísa Þórð­ar­dóttir, vara­þing­kona Pírata, fóru á áróð­urs­ráð­stefnu sem er fjár­mögnuð af rúss­neskum yfir­völdum. „Ég er ekki sér­stakur stuðn­ings­maður Rússa, Kína, Banda­ríkj­anna né ann­arra stór­velda og gagn­rýni þau öll við hvert tæki­færi, líka þarna,“ segir Birgitta.

Fóru í boðsferð til Krímskaga á Pútínráðstefnu
Fóru á Rússa­vina­ráð­stefnu „Það voru mis­tök að fara í þessa ferð,“ sagði Sara í sam­tali við Stundina á dög­unum. Mynd: Af Facebook

Birgitta Jóns­dóttir, stjórn­ar­for­maður International Modern Media Institute og fyrr­ver­andi þing­kona Pírata, tók þátt í pall­borðsum­ræðum á ráð­stefnu í Jalta á Krím­skaga í apríl 2018. 

Ráð­stefnan, Yalta International Economic Forum, er fjár­mögnuð af rúss­neskum yfir­völdum, „Krím­lýð­veld­inu“ svo­kall­aða, og þjónar mik­il­vægu áróð­urs­hlut­verki fyrir Rússa í tengslum við Úkra­ínu­stríðið og inn­limun Krím­skaga. 

„Ég var í panel með fjölda ann­arra og ræddi meðal ann­ars um mik­il­vægi þess að fjöl­miðlar fái að starfa sjálf­stætt án afskipta yfir­valda,“ segir Birgitta aðspurð um málið.

„Ég tal­aði líka um mik­il­vægi lista­manna eins og Pussy Riot sem eru með beitta sam­fé­lags­rýni í sínum verkum. Svo ræddi ég við aðra ráð­stefnu­gesti um alls konar hluti, til dæmis hvar við vorum og við hvaða kring­um­stæður við vorum þarna.“

Pútín sendi gestum góða kveðju

Prýddi for­síð­unaGefið var út ráð­stefnu­blað með drottn­ing­ar­við­tali við Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta.

Ráð­stefnu­gestir fengu heilla­óskir frá Vladímír Pútín Rúss­lands­for­seta og gefið var út blað í til­efni ráð­stefn­unnar með drottn­ing­ar­við­tali við hann. Fjöldi evr­ópskra stjórn­mála­manna sótti sam­kund­una, meðal ann­ars liðs­menn hægripopúlista­flokka á borð við Þjóð­fylk­ingu Frakk­lands og Alt­ernative für Deutschland.

Auk Birgittu sóttu ráð­stefn­una þær Sara Elísa Þórð­ar­dóttir, vara­þing­kona Pírata, og Eva Lind Þur­íð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi með­limur í fram­kvæmda­ráði flokks­ins. „Það var greitt fyrir flug og gist­ingu eins og er krafa sem ég hef ef ég mæti á ráð­stefnur,“ segir Birgitta.

Sara minnt­ist nýlega á ferð­ina í við­tali við Stundina þar sem hún lýsti reynslu sinni af því að vinna með Birgittu. „Þarna kynnt­ist ég hlið á Birgittu sem mér rennur kalt vatn milli skinns og hör­unds við að rifja upp. Það tók mig tölu­verðan tíma að jafna mig,“ sagði hún. „Það voru mis­tök að fara í þessa ferð.“

Framvísuðu vegabréfum til að fá símkort

Birgitta seg­ist hafa boðið Söru með sér á ráð­stefn­una. „Þegar ég ákvað að þekkj­ast boðið þá bauð ég Söru með til þátt­töku en þegar á hólm­inn var komið ótt­að­ist hún að það gæti haft slæm áhrif á hennar stjórn­mála­feril ef það myndi spyrj­ast út og fyrir vikið eyddi hún mestum tíma sínum í her­berg­inu sínu.“ 

Sara segir hins vegar í sam­tali við Stundina að Birgitta hafi fengið sig með í ferð­ina á þeim for­sendum að til stæði að vera með upp­steyt af ein­hverju tagi, gagn­rýna mann­rétt­inda­brot og hern­að­ar­brölt Rússa. Þegar ljóst varð að af því yrði ekki hafi hún séð eftir því að hafa sleg­ist í hóp­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár