Þýska öfgahægrið vill hreinsa til í menningarlífi landsins

Meðlimir Alt­ernative für Deutschland vilja láta til sín taka innan þýska menn­ing­ar­geirans. Flokks­menn hafa þegar hreiðrað um sig innan veggja ýmissa menn­ing­ar­stofn­ana og vilja hreinsa þær af þeim „óþverra“ sem þar fyr­ir­finnst.

Þýska öfgahægrið vill hreinsa til í menningarlífi landsins
Byltingu gegn Merkel Alex­ander Gauland, annar for­manna AfD, kallað eftir „frið­sam­legri bylt­ingu“ til þess að losa valda­kerfið við alla þá sem hafa verið hlið­hollir stefnu Merkel. Mynd: Olaf Kosinsky.info@kosinsky.eu

Liðsmenn þýska hægri öfga­flokks­ins Alt­ernative für Deutschland, AfD, hafa að und­an­förnu sýnt menn­ing­ar­stofn­unum Þýska­lands auk­inn áhuga. Þingmenn og aðrir stuðn­ings­menn flokks­ins hafa lýst því yfir hvernig þeir vilji hreiðra um sig innan þess­ara stofn­ana og breyta áhersl­unum innan frá. Þannig er meðal ann­ars talað um að hreinsa menn­ing­ar­geir­ann af þeim „óþverra“ sem hafi fengið að grass­era þar und­an­farin ár. Þetta megi gera með því að reka það fólk úr áhrifa­stöðum sem er AfD ekki að skapi eða loka fyrir fjár­veit­ingar til til­tek­inna leik­húsa eða safna.

Volks­bu­hne í BerlínMeðlimir AfD hafa augun á leik­húsum lands­ins, hvar þeir vilja sjá öðru­vísi og þjóð­legri áherslur.

Utan Þýska­lands er AfD einna helst þekkt fyrir þá útlend­inga­andúð sem flokk­ur­inn hefur sett á odd­inn. Alex­ander Gauland, annar for­manna AfD, hefur, rétt eins og allir helstu tals­menn AfD, gagn­rýnt Angelu Merkel Þýska­landskansl­ara harka­lega fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þýsk stjórnmál

Reynsla

Jón Bjarki Magnússon

Þegar lúx­em­borg­skt skúffu­fé­lag eign­að­ist heim­ilin okkar

Berlín­ar­búar beita ýmsum ráðum til þess að halda niðri leigu­verði í borg sem trekkir að sér sífellt fleiri íbúa. Þegar lúx­em­borg­skt skúffu­fé­lag keypti nýlega litla íbúð­ar­blokk í aust­ur­hluta borg­ar­innar tóku leigj­end­urnir sig saman og börð­ust gegn söl­unni. Íslend­ing­arnir í hús­inu höfðu litla trú á að slík bar­átta gæti skilað árangri.

12 mín. lestur

ErlentÞýsk stjórnmál

Þýska öfga­hægrið missir flugið

Stuðn­ingur við þýska hægri öfga­flokk­inn Alt­ernative für Deutschland, AfD, virð­ist fara dvín­andi sam­kvæmt nýlegum skoð­ana­könn­unum í Þýska­landi. Meðlimir flokks­ins hafa meðal ann­ars talað fyrir því að flótta­menn séu skotnir á landa­mær­unum, gegn fóst­ur­eyð­ingum og kyn­fræðslu barna, og sagt að íslam sam­ræm­ist ekki stjórn­ar­skránni. Eftir að hafa fagnað sigri síð­ast­liðið haust mælist flokk­ur­inn nú aðeins með 8,5 pró­sent fylgi.
Erlent

Angela Merkel, leið­togi hins frjálsa heims

Ýmsir vilja meina að Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, sé leið­togi hins frjálsa heims nú þegar Donald Trump hefur tekið við völdum í Banda­ríkj­unum. Prests­dóttirin Merkel ólst upp í Austur-Þýska­landi. Hún er mennt­aður eðl­is­fræð­ingur og talar reiprenn­andi rúss­nesku. Við fall Berlín­ar­múrs­ins ákvað hún að láta til sín taka á vett­vangi stjórn­mál­anna. Kansl­ar­inn sæk­ist nú eftir end­ur­kjöri fjórða kjör­tíma­bilið í röð en kom­andi ár gæti orðið afdrifa­ríkt í Evrópu nú þegar popúl­ískir hægri flokkar eru að sækja í sig veðrið í álf­unni.

10 mín. lestur

Erlent

Óttast að falskar fréttir grafi undan lýð­ræð­inu í Evrópu

Svoköll­uðum fölskum fréttum hefur fjölgað veru­lega í Þýska­landi á nýju ári. Facebook hefur gert samn­ing við rann­sókn­ar­fjöl­mið­il­inn Correctiv um að sann­reyna þýskar fréttir. Svipaðir samn­ingar hafa verið gerðir í Banda­ríkj­unum. Frönsk og þýsk stjórn­völd ótt­ast að falskar fréttir geti haft veru­leg áhrif á kosn­inga­úr­slit í lönd­unum tveimur. Stjórn­mála­menn nýta sér orð­ræð­una um falskar fréttir í þeim til­gangi að grafa undan gagn­rýn­inni umræðu.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár