Kristallað metamfetamín auglýst til sölu í leynihópum

Sala á metam­fetamíni hefur auk­ist á Íslandi und­an­farin ár. Aðal­per­sóna þátt­anna Breaking Bad er notuð til að aug­lýsa gæði þess í lok­uðum spjall­hópi þar sem boðið er upp á „Walter White type of shit“.

Kristallað metamfetamín auglýst til sölu í leynihópum
Krist­allað metam­fetamín Efnið er til sölu í leyni­legum hópum.

Krist­allað metam­fetamín, eða „crystal meth“, er boðið til sölu í leyni­legum hópi á sam­fé­lags­miðlum. Sala og neysla á vímu­efn­inu hefur auk­ist und­an­farin ár á Íslandi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Metam­fetamín hefur öðru hverju komið inn á borð lög­regl­unnar, en krist­all­aða útgáfan er til­tölu­lega sjald­gæf á Íslandi. Efnið hefur verið selt í duft­formi og lík­ist amfetamíni eða spítti. Sé efnið í formi lít­illa krist­alla er efnið sterkara og neyslu­skammt­arnir minni. Það er því almennt selt í 0,1 gramms skömmtum, en duftið í 1 grammi. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu telur að það sem af er ári hafi metam­fetamín verið hald­lagt oftar en tutt­ugu sinnum.

Efnið er boðið til sölu á 10 þús­und krónur fyrir 0,1 gramm í leyni­hópi á sam­fé­lags­miðlum þar sem vímu­efni ganga kaupum og sölum. Efnið er ódýr­ara í meira magni og einnig er boðið upp á „góða heild­sölu­díla“. Til aug­lýs­ingar er efnið sagt vera „Walter White …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár