Mynd: Heiða Helgadóttir

Draumur um fjárhagslegt frelsi

Hjördís Halla Eyþórs­dóttir ætlar að lifa lífi þar sem hún er frjáls og getur leikið sér, notið stund­ar­innar og nátt­úr­unnar. Hún hefur því fest kaup á húsi í sveit, þangað sem hún ætlar að flytja með tím­anum til að flýja neyslu­hyggju nútíma­sam­fé­lags.

„Draum­ur­inn er að eign­ast heim­ili í sveit og vera frjáls frá fjár­hags­skuld­bind­ingum,“ segir Hjördís Halla Eyþórs­dóttir.

Frá árinu 2012, eða í heil sjö ár, hefur Hjördís Halla verið á svo miklu flakki að hún hefur aldrei náð að festa rætur eða eign­ast heim­ili. Á þessum sjö árum hefur hún leigt hús­næði á tólf mis­mun­andi stöðum, búið inni á vinum sínum og úti á landi í íbúð í boði vinnu­veit­anda. Í gegnum allt þetta flakk og flandur hefur hún öðl­ast þann draum að fá að festa rætur og eign­ast sitt eigið heim­ili. „Mig dreymir um að eiga mitt eigið hús­næði, þar sem ég ræð mér sjálf og get lifað mínu lífi, út frá mínum hug­sjónum og mínum gildum. Ég vil fjár­hags­legt frelsi svo ég geti verið frjáls og gert það sem ég vil. Mér finnst svo margir vera í þeirri stöðu að vera skuld­bundnir bank­anum í gegnum lána­við­skipti alla ævi. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár