Velkomin heim Valkyrja

Áhöfnin á skút­unni Valkyrju sigldi í höfn um hádeg­is­bil á þriðju­dag eftir tveggja mán­aða­ferða­lag. Nú er ferða­lag­inu lokið og fjöl­skyldur áhafn­ar­með­lima voru fegnar að fá þá aftur í arma sína.

Velkomin heim Valkyrja

Á Norð­ur­bugt í Reykja­vík­ur­höfn ganga Bergþóra Snæ­björns­dóttir og Úa Braga­dóttir niður flot­bryggj­una í átt að skútu­stæði merkt skút­unni Valkyrju. Maðurinn hennar Bergþóru og pabbi hennar Úu, Bragi Páll Sig­urð­ar­son, er á sigl­ingu rétt við Íslands­strendur og á að koma í höfn hvað úr hverju. Bragi hefur ásamt áhöfn siglt skút­unni alla leið frá Sikiley. 

Beggó og Úa

Margrét Arn­ars­dóttir harm­on­ikku­leik­ari gengur niður á bryggju, hún ætlar að taka á móti Valkyrju og vinum sínum með hátíð­legum harm­on­ikku­leik. Á einum bát­anna á flot­bryggj­unni situr maður sem spyr nær­stadda út í þessa ævin­týra­ferð Val­kyrju­manna á meðan hann dittar að bátnum sínum. Oddur Ást­ráðs­son, lög­fræð­ingur og vinur Val­kyrju­manna gengur næst niður flot­bryggj­una. Hann á erfitt með að fela hvað hann er spenntur að taka á móti þeim, brosið hans brýst út við hvert tæki­færi. Oddur hitti þá sein­ast á Spáni en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár